Andvari - 01.01.1885, Page 93
Odáðahraun.
87
yfir hraunkvíslar þær, er þaðan falla. Hæðir þessar eða
undirhlíðar mynda hrygg, sem gengur til norðausturs í
Trölladyngju; er liann brattur að vestan og smáhallar
austur af. Háls þennan mætti nefna Dyngjuháls. Hann
er allur eldbrunninn og hafa hraun fallið þaðan austur
og vestur úr 7 löngum gígaröðum. Hraunin á hálsi
þessum eru eigi mjög ill yfirferðar, því í holunum er
víða hraunmylsna og roksandur. Upp úr hraununum á
hálsi þossum standa hjer og livar smá móbergsfell í
drögum frá suðvestri til norðausturs. Sumar hraun-
spildurnar ná alveg upp í jökul, og gígir þeir eru undir
snjó, sem áður hafa gosið. Brún jökulsins er hjer öll
með urðarnybbum og svörtum strýtum með snjó innan
í. Austan við hálsinn riðum við um stund á sjálfri
jökulröndinni, því þar var hann nokkurn veginn greið-
fær; síðan fórum við yfir hraun, sem fallið hefir undan
jöldinum niður á sandana vestan við Kistufell. fegar
við komum niður á sandana var orðið bálhvasst með
sandroki, svo smámölin og sandurinn buldi á oss. Voru
byljirnir niður um jökulskörðin við fellið fjarska harðir.
Það er auðsjeð, að hjer gengur opt mikið á; harðar
blágrýtisklappir eru núnar með djúpum hvylftum og
geilum eptir sandrokið og grjótfiugið, sem hjer kemur í
sunnanveðrum. Hvergi er stingandi strá alla lcið frá
Gæsavötnum að Jökulsá, ekki svo mikið sem eitt punt-
strá eða víðirlauf. |>ó fundum við kindarbein við
Kistufell; hefir kinditi villzt þangað og orðið úti1.
Aðalborgtegundin í Kistufolli er ljett móberg með
1) það ber eigi sjaldau við, að fje hleypur og villist laugar
leiðir í |iessum lijeruðum. Fyrir 4 eða 5 árum var t. d. fje
frá Bárðarstöðum í Bárðardal rokið á austurfjöll (Mývatus-
örœfi); tveir sauðir af pessu fjc fundust um haustið vcstur við
Baugafell upj) af Skagafirði, og íorustuhrútur og sauður kom-
ust suður í Holt og náðust í Skaptholtsrjett; þoir hafa þá
hlaupið allan Vatuajölculsveg suður á land.