Andvari - 01.01.1885, Page 140
134
Laxveiðar og silungsveiðar.
að veiða á flugu og agnfisk, en náði engri skepnu, og
hvergi gat jeg orðið nokkurs fiskjar var. Menn höfðu
ekki tíma til að fara með mjer upp að efri veiðistöð-
unum, afpví allir höfðu nóg að starfa að koma heyjum
sínum undan skemmdum í þeirri óþurrkatíð, sem pá var.
Á Hvítárvöllum er töluverð laxveiði, og stundar
eigandinn, herra Fjeldsted, liana með mikilli umhyggju-
semi, enda hefir hann verið hugsunarsamari um þann
atvinnuveg sinn on flestir aðrir ísleudingar, sem veiði-
rjett eiga. Eptir hans skoðun gengur iaxinn þegar í
apríl upp í Hvítárós. 1884 komu smálaxarnir á undan,
en annars eru stærri laxarnir vanir að ríða á vaðið;
árið áður komu þeir ekki fyr en í júlí, annars koma
þeir stærstu í maí. Úr Grímsá fær Fjeldsted stærsta
laxa; þeir eru hjer um bil 30 pd. hver.
Fjoldsted hcfir þegar í ágúst og septbr. sjeð laxa
hrygna þar nálægt bænum. 6. sept 1882 fann hann
laxahrogn í Hvítá og 9. s. m. laxaegg í silungsmaga,
som því hefir jetið hrognin nýgotin. 1878 fann liann
enda hrogn á riðbletlunum 20. og 27. ágúst. í hörð-
um vetrum segist Fjeldsted hafa sjeð laxaegg freðin
saman í kekki berast burt með straumnum í jakaburði.
Eptir þvi sem hann heldur, hafa laxaungarnir verið
farnir úr ánni og til hafs, þegar jeg var þar, svo að
jeg hefði ekki getað fundið þá. Jeg varð ekki lieldur
neinstaðar var við þá, enda furðar mig ekki á því.
Fjeldsted sagði mjer lauslega, hvernig sjer hefði
heppnazt veiðin undanfarin ár, og verður skýrsla hans
hjer um bil þannig:
Árið 1878 lieppnaðist veiðin »Dável«.
1879 -»— — »Ekki vel».
1880 —»- — »Ekki vel«.
1881 — — »Illa«.
1882 —»— — »llla«.
1883 —» — — »í meðallagi«.
1884 —»~ — »Hjög vel« (900 laxar)