Uppeldi og menntun - 01.01.2001, Blaðsíða 121
ROBERT BERMAN o.fl.
(bæði gagnasöfn). Þriðji þáttur (tvær spurningar í báðum gagnasöfnum) lýtur að
mati nemendanna sjálfra á áhrifum skóla (grunn- og framhaldsskóla) á enskukunn-
áttu þeirra (alfastuðull er 0,53 í fyrra gagnasafni og 0,46 í seinna gagnasafni).
Aðhvarfsgreining
Aðhvarfsgreining var notuð til að kanna áhrif ólíkra breyta á enskukunnáttu í fram-
haldsskóla í fyrra og seinna gagnasafni. Sett var fram skýringarlíkan í átta þrepum.
Frumbreyturnar komu því inn í líkanið samkvæmt fyrirfram ákveðinni röð. Áhrif
frumbreyta eru á þann hátt leiðrétt fyrir áhrifum þeirra breyta sem koma samtímis
eða fyrr inn í líkanið, en ekki fyrir áhrifum þeirra sem koma á eftir.
11. þrepi voru metin áhrif enskunámskeiða utan skóla sem nemendur sóttu hér
á landi og erlendis áður en þeir tóku samræmd próf í 10. bekk. Einnig voru metin á-
hrif dvalar í enskumælandi landi sem varað hafði lengur en tvo mánuði samfellt, og
hafði átt sér stað fyrir samræmd próf í 10. bekk.
í 2. þrepi voru metin áhrif árangurs nemendanna í ensku á samræmdu prófi í 10.
bekk. Kyni og aldri var bætt við í 3. og 4. þrepi. Áhrif skóla voru metin í 5. þrepi.
Gerðar voru vísibreytur (dummy variables) fyrir 23 skóla í fyrra gagnasafni og 20 í
seinna gagnasafni.4 Vísibreytur gera mögulegt að meta áhrif hvers skóla fyrir sig.
I 6. þrepi voru metin áhrif enskunámskeiða hérlendis og erlendis og dvalar í
enskumælandi landi sem átt hafði sér stað eftir samræmd próf 10. bekkjar. Fjórum
breytum var bætt við í 7. þrepi um notkun ensku utan skóla sem komu fram í þátta-
greiningu og lýst er hér að framan. Þáttabreyturnar mældu lestur á ensku og ritun,
hve mikið var horft á enskt kvikmyndaefni og hve oft enska var töluð utan skóla.
4. tafla. Aðhvarfsgreining. Skýring breyta í hverju þrepi á dreifingu
námsárangurs í ensku í framhaldsskóla.
Fyrra gagnasafn 2.ár/3.önn Seinna gagnasafn 4.ár/7.-8.önn
Þrep R2 R2 aukning R2 án leiBréttingar R2 R2 aukning R2 án leið rétt.
1. Námskeið og dvöl erlendis 0,017 0,017 0,017 0,052 0,052 0,052
fyrir samræmd próf 10. bekkjar
2. Samræmd próf 10. bekkjar 0,601 0,584 0,600 0,625 0,573 0,612
3. Kyn 0,606 0,005 0,027 0,629 0,004 0,026
4. Aldur 0,607 0,001 0,033 0,631 0,002 0,022
5. Skólar 0,678 0,071 0,146 0,653 0,022 0,156
6. Námskeið og dvöl erlendis 0,685 0,007 0,017 0,655 0,002 0,008
eftir samræmd próf 10. bekkjar
7. Notkun ensku utan skóla 0,701 0,016 0,162 0,675 0,020 0,210
8. Mat þátttakenda á 0,705 0,004 0,113 0,678 0,003 0,106
áhrifaþáttum á enskukunnáttu
4 Vísibreytur voru eingöngu útbúnar fyrir framhaldsskóla með 10 nemendur eða fleiri.
119