Uppeldi og menntun - 01.01.2001, Side 122

Uppeldi og menntun - 01.01.2001, Side 122
NAMSARANGUR FRAMHALDSSKOLANEMA I ENSKU Einnig var stök spurning („Kanntu utan að heila texta úr enskri eða amerískri tón- list?") höfð með í greiningunni, en hún hlóð ekki markvert á neinn þáttanna þriggja. í 8. þrepi var bætt við þremur þáttabreytum um mat þátttakenda á því hvað hefði haft áhrif á enskukunnáttu þeirra. Þáttabreyturnar voru: Ahrif enskunotkun- ar, áhrif sjónvarps, myndbanda og tónlistar og áhrif grunn- og framhaldsskóla. Einnig var bætt við breytu um mat á áhrifum þess að lesa ensku utan skóla. Niðurstöður aðhvarfsgreiningar eru sýndar í 4. töflu. Arangur í ensku á sam- ræmdum prófum í 10. bekk (2. þrep) skýrir langmest af breytileika árangurs í ensku í framhaldsskóla í fyrra gagnasafninu eða 58,4% og 57,3% í seinna gagnasafninu. Breytur í 1. þrepi skýra tæp 2% í fyrra gagnasafninu og 5% í seinna gagnasafninu. Það er einkum dvöl í enskumælandi landi sem hefur jákvæð áhrif í báðum gagna- söfnum. Kyn (3. þrep) bætir sáralitlu við skýringuna í báðum gagnasöfnum og skýr- ing aldurs (4. þrep) er marktæk í fyrra gagnasafninu en ekki því síðara. Skólar (5. þrep) bæta rúmlega 7,1% við í fyrra gagnasafninu og rúmlega 2,2% í seinna gagna- safninu. Námskeið utan skóla og dvöl í enskumælandi landi eftir samræmd próf í 10. bekk (6. þrep) skýra innan við 1% í fyrra gagnasafninu en bæta engu við í því seinna. Enskunotkun utan skóla (7. þrep) bætir við 1,6% í fyrra gagnasafninu og 2,0% í seinna gagnasafninu. I báðum gagnasöfnum er það lestur á enskum texta sem hefur mest áhrif á frammistöðu í ensku. Viðhorfaspurningar um mat nemenda á því hvað þeir telji að hafi helst áhrif á enskukunnáttu þeirra (8. þrep) bæta sáralitlu við skýringuna eða innan við 1% í báðum gagnasöfnum. Heildarskýring Iíkansins er 70,5% í fyrra gagnasafninu og 67,8% í seinna gagnasafninu. Breytt þreparöð í aðhvarfsgreiningu Röð þrepanna í líkaninu sem greint var frá hér að framan er ekki sjálfgefin. Það er til að mynda álitamál hvort áhrif kynferðis og aldurs, enskunotkunar utan skóla og svo framvegis skuli leiðrétt fyrir áhrifum árangurs á samræmdum prófum. Sú röðun þrepa, sem valin var í líkaninu, leiðir hugsanlega til ofmats á áhrifum samræmdra prófa í 10. bekk. Af þessum ástæðum var einnig athuguð skýringargeta hvers þreps án leiðrétt- ingar fyrir breytur í öðrum þrepum (4. tafla). Skýringargeta skóla verður þá tæplega 15% í fyrra gagnasafninu og tæplega 16% í seinna gagnasafninu, en var áður 7,1% og 2,2% í sömu gagnasöfnum. Einnig koma fram umtalsverð áhrif notkunar ensku utan skóla. Þær breytur skýrðu aðeins tæplega 1,6% (fyrra gagnasafn) og 2,0% (seinna gagnasafn) þegar leiðrétt var fyrir áhrifum annarra breyta, en án leiðréttingar skýra þessar breytur 16,2% (fyrra gagnasafn) og 21,0% (seinna gagnasafn). Sömu sögu er að segja um breytur sem mæla mat þátttakenda á áhrifum þátta á enskukunnáttu þeirra. An leiðréttingar fyrir áhrifum breyta í öðrum þrepum skýra þessar breytur 11,3% (fyrra gagnasafn) og 10,6% (seinna gagnasafn) en þær skýra aðeins 0,4% (fyrra gagnasafn) og 0,3% (seinna gagnasafn) þegar leiðrétt er fyrir aðrar breytur. Einnig var gerð önnur aðhvarfsgreining þar sem röð þrepanna var breytt. Ein- kunn á samræmdu enskuprófi í 10. bekk var höfð síðust í líkaninu af þeim breytum sem geta haft áhrif á enskukunnáttu fyrir framhaldsskólanám. Áhrif samræmdrar einkunnar í ensku í 10. bekk var því leiðrétt fyrir áhrifum enskunámskeiða og dval- 120
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.