Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 388
386
Árbók Háskóla íslands
Sigurðsson tók við starfi lektors 1997 og
hlaut framgang í starf dósents þremur árum
siðar. Mönnun kennara fræðigreinarinnar
árið 1997 var því þessi: einn prófessor í
100% starfi við H. í., þar af var hluti starfans
að vera yfirlæknir við Heilsugæslustöðina,
Sólvangi, Hafnarfirði, og að sinna sjúklingum,
í um 20% starfshlutfalli; tveir lektorar/dós-
entar í 37% störfum við H. í. auk klínískra
starfa, en Emil var heilsugæslulæknir við
Heilsugæslustöðina, Sólvangi, Hafnarfirði,
og Bryndís var heilsugæslulæknir við Heilsu-
gæsluna í Garðabæ.
Húsnæði
Háskólaeining fræðigreinarinnar hefur átt
inni í Sigtúni 1, síðar Sóltúni 1, í Reykjavík á
tímabilinu, en þar er um 300 m2 húsnæði í
eigu Háskólans. Heimilislæknisfræði hefur
haft um helming þess til ráðstöfunar. Aðstaða
var fyrir skrifstofur kennara, akademískan
ritara, seminarkennslu auk fyrirlestra í
kennslusal. Meirihluti fræðilegrar kennslu
fór fram á þessum stað.
Allir læknar í kennarastöðum voru jafn-
framt starfandi heimilislæknar og höfðu
starfsaðstöðu á heilsugæslustöðvum. Klínísk
kennsla fór fram á þessum stöðum. Auk þess
tóku heilsugæslulæknar í þéttbýli og dreif-
býli að sér stundakennslu vegna klínískrar
kennslu.
Arið 1991 var gerður samningur milli
læknadeildar Háskóla íslands annars vegar
og Heilsugæslustöðvarinnar Sólvangi hins
vegar um starfsaðstöðu prófessors í heimilis-
lækningum í húsnæði heilsugæslustöðvar-
innar vegna rannsókna, kennslu og faglegrar
þróunar.
Rannsóknir og þróunarverkefni
Undirbúningur, umsjá og þátttaka í vís-
indaþingum: Saga heimilislæknisfræði hér
á landi er samofin sögu heimilislækna
almennt, einkum fagfélagi þeirra, Félagi
íslenskra heimilislækna. Öll umfangsmeiri
verkefni fræðigreinarinnar hafa verið unnin í
samvinnu við það félag. í þessari samantekt
verður sérstaklega getið faglegra þinga innan
fræða og fags, þar eð þau endurspegla að
jafnaði akademíska rannsóknarvinnu.
Á íslandi var haldinn 5:e Nordiska
kongressen i allmanmedicin 14-17 juni 1987,
og var það í fyrsta sinn, sem þetta þing var
haldið hér á landi. Félag íslenskra heimihs-
lækna og heimilislæknisfræði H. í. önnuðust
undirbúning. Þingið var vel sótt og gaf góða
mynd af vísindalegu framlagi og þróun i
kennslu og viðhaldsmenntun. Af því hlaust
einnig töluverður hagnaður. Fjárhagsstaða
félags heimilislækna varð mun sterkari en
áður, og þingið var hvati til frekari dáða vt
faglega uppbyggingu, einkum fræðilega
hluta þess. I framhaldinu ákvað félagið a
gefa læknadeild stöðu prófessors til tvegg)a
ára. Deildin þáði gjöfina, og staðan var
auglýst árið 1990 eins og fyrr segir.
Sömu aðilar tóku aftur að sér undirbúning
og þinghald norræna þingsins árið 1997, og
10:e Nordiska kongressen i allmánmedicin
11-14 juni 1997 var haldinn hér. Ágóði at
þinghaldinu rann m. a. til Vísindasjóðs re
lags íslenskra heimilislækna, sem stofnao
hafði verið eftir fyrra þingið. , ,
Heimilislæknisfræði/læknadeild H. I- h®
ur einnig tekið virkan þátt í innlendum vis
indaþingum Félags íslenskra heimilisl®hna-
Það fyrsta var haldið á Húsavík haustið 199 -
Þessi þing hafa síðan verið reglulega á haus ^
dögum annað hvert ár, þ. e. 1994, 1996 og
1998. Dagskrár og úrdrættir hafa verið ge 1
út á vegum þinghaldara. Þar gefur að 1
ágætt yfirlit um faglega virkni. Margar þeirr
rannsókna, sem þar voru fyrst ræddar og
mótaðar, voru síðar birtar í innlendum e
erlendum vísindatímaritum. Mörg Þel
verkefna, sem hafa verið til umfjöllunar,
hafa ekki verið birt síðar í ritrýndum fr®
ritum, hafa eigi að síður skipt máli fyrjr
lega þróun. Kennarar í heimilislækning11
hafa að auki haldið árlega hálfsdags na
skeið, svonefnda Sóltúnsdaga, síðar
vangsdaga, í fræðilegri aðferð fyrir heimi
lækna.
Vísindasjóður Félags íslenskra heim'Jja_
lækna: Góð heilsugæsla er grundvöllur a
heilsu
auðh
demískra starfa á þessu sviði. Gæði he
gæslunnar tengjast starfsaðstöðu, man|ia ar.
tíma og fjármagni til vísinda og Þron
starfa. Á síðustu áratugum hefur UP1’
ing heilsugæslunnar og menntun star