Hlín - 01.01.1951, Blaðsíða 6
Frjettir af samtökum kvenna í landinu.
(Fundargerðir athugaðar).*
Kvenfjelögin eru nú orðin á 3. hundrað í landinu og
fjelagskonurnar um 11 þúsund. Allar sýslur landsins eru
komnar inn í systrahringinn. — hað eru ánægjuleg sam-
tök þetta, því góð samvinna hefur jafnan ríkt, engir
flokkadrættir átt sjer stað, og þarafleiðandi mörg þjóð-
þrifamál náð fram að ganga fyrir fylgi þessara fjelaga,
mörgum verið rjett hjálparhönd og mörgu þarflegu hrint
í framkvæmd.
Maður verður margs vís, ef maður grannskoðar fund-
argerðirnar, þar koma fram mörg og mismunandi sjónar-
mið, þó er það ekki nema svipur hjá sjón í samanburði
við það að kynnast fjelagsskapnum beinlínis, finna þann
áhuga og yl, sem í samtökunum felst. — Jeg hef átt því
*Flest kvenfjelagasambönd láta nú fjölrita fundargerðir sínar
frá aðalfundunum, enda ætti það aldrei að bregðast að það sje
gert, og það sem fyrst eftir fundinn, meðan alt er í fersku minni.
Það er mjög mikils vert að fundargerðirnar sjeu sendar, fyrst og
fremst öllum fjelögum innan samtakanna, ekki síst þeim, sem
ekki höfðu ástæðu til að taka þátt í fundinum. En fleirum á að
senda; þeim sem hafa áhuga og skilning á þessum málum, og ef
til vill ekki síður þeim sem þarf að vekja til skilnings. — Þessi
fjelagssamtök, með um 11 þúsund konum í 2—300 fjelögum er
merkur þáttur í þjóðlífinu, og fundargerðirnar merk skilríki
frá því starfi, sem þar er unnið.
Sjerstaklega þurfa öll Samböndin, eða ritarar þeirra, að gæta
þess að sendast á fundargerðum sín á milli. Það er lærdómsríkt
að sjá hvemig gengur á hinu landshorninu, af því má margt
læra. Það er mjög lítill kostnaðarauki að fjölrita nokkrum ein-