Hlín - 01.01.1951, Blaðsíða 128
126
Hlin
Á ársfundunum leggja fjelögin ætíð fram skýrslur um
störf sín. Þessar skýrslur fólu í sjer mikinn fróðleik og fór
hann sívaxandi. — Var undravert hvað fjelögin afköstuðu
miklu, og hve ráðdeildarsöm þau voru í fjáröflunum, sem
ýmist var varið til framkvæmda innan sveita og þátttöku
í framfaramálum, eða til minningasjóða um merkiskon-
ur, sem á sínum tíma skyldi varið til nytsamlegra athafna.
— Þá má ennfremur nefna öll þau býsn, sem varið liefur
verið til allskonar góðgerðarstarfsemi, ekki einungis inn-
an sveitar, helclur einnig stórar upphæðir, sem sendar hafa
verið út úr landinu, bæði í peningum og fötum síðasta
áratuginn.
Jeg hef ekki við hendina þær skýrslur, sem þarf til þess
að hægt sje að fara nákvæmlega út í starfsemi S. S. K. —
Ekki liefur altaf verið jafn auðvelt að halda námskeiða-
starfseminni uppi, t. d. hamlaði mjög skortur á innflutt-
um vörum til fatnaðar, en þá var mun meiri áhersla lögð
á að kenna að notast við það, sem til var, saumaðar flíkur
upp úr gömlu og því um líkt. — Eitt starf á vegum Sam-
bandsins tel jeg hafa borið mikinn árangur, það eru leið-
beiningar í garðrækt, enda fjekk Sambandið góðan styrk
til þess frá Búnaðarsambandi Suðurlands og hafði oft
góðum kenslukonum á að skipa. Þessi starfsemi lagðist
niður í byrjun síðasta stríðs, vantaði þá bæði leiðbeinend-
ur og fjármagn.
Um þær rnundir var komið að því að hefjast handa um
byggingu húsmæðraskóla að Laugarvatni, en því varð
einnig að fresta vegna stríðsins og breyttra aðstæðna. —
Þótt húsmæðraskólamálið væri eitt af áhugamálum S. S.
K. og unnið að því eftir bestu getu að hrin>da því í fram-
kvæmd, þá er það mál fyrir sig, sem jeg fer hjer ekki út í,
að öðru leyti en því, að jeg lít svo á, að húsmæðraskóla-
máli Suðurlands sje nú, eftir ástæðum, prýðilega borgið
með þeirn skóla, sem nú er kominn upp á Laugarvatni
og starfar þar.