Hlín - 01.01.1951, Blaðsíða 148
146
Hlin
Sveitakona á Norðurlandi skrifar á útmánuðum 1951:
Nú er maður að hamast í tóskapnum. Jeg spann alt fyrir jól,
og hafði alveg nýja aðferð við leista- og peysulopann minn. Jeg
má til með að segja þjer það, hvernig jeg fór með lopann. Jeg
lagði hann þrefaldan saman og hafði svo 4 snúninga (á 15 þráða
spunavjel). — Bandið lítur út alveg eins og siffrúgarnið hjer
óður, þegar maður er búinn að þvo þetta, og indælt að prjóna
úr því og áferðarfallegt.
Sonur minn, sem heima er, prjónar leistana, þegar hann
kemur úr húsunum. — R.
Úr Gaulverjabæjarhreppi er skrifað haustið 1950:
Mjer finst heimilisiðnaðurinn ein af máttarstoðum íslenskrar
menningar, og þaraðauki andleg heilsulind.
Kvenfjelagið okkar lifir svona sæmilegu lífi. — Við höfum
altaf einhver viðfangsefni, þótt smá sjeu. Gefum stundum smá-
gjafir til gagns og gamans. — Núna erum við að setja til all-
langa voð, sem á að verða áklæði á stóla samkomuhússins hjer
í Gaulverjabæjarhreppi. Voðin þarf að vera um 63 metrar.
Netagarn uppistaða, en þrinnað band fyrirvef. Kvenfjelags-
konur sjá um útvegun og vinnu á þessum vefnaði og við stönd-
um undir kostnaðinum. — Þetta verður líka aðalverkefnið í
vetur. — S.
Frá Seyðisfirði er skrifað á útmánuðum 1951:
Nú er blessuð sólin að hækka göngu sína enn á ný, og er þá
sem aftur birti í hugum okkar og vonin glæðist um batnandi tíð
og bjartari daga.
Nú veit jeg að þú hefur gaman af að frjetta eitthvað af vinnu-
brögðum okkar. Til gamans skal jeg segja þjer, að á s. 1. ári óf
jeg hjer heima 10 vefi, að vísu ekki alla langa, svona 10—15
metra. Ekki óf jeg þá heldur alla ein, ungu stúlkurnar hjerna
hafa fjarska gaman af að skjótast í vefstólinn hjá mjer, til þess
að vefa sjer sessuborð eða borðrenning, og gjarnan hafa þær
gaman af að vefa bara tuskumottur. — Jeg segi þjer satt, að þú
hefðir gaman af að tala við ungu stúlkurnar hjerna og heyra,
hve mikinn áhuga þær hafa fyrir vefnaðinum .— Nú langar
okkur mikið til að hafa svolítið námsskeið eins og í fyrra. —
Talsvert hefur verið unnið hjer af leistum og vettlingum.
Frá Hrísey vorið 1951:
Það er staddur hjer maður núna austan úr Fnjóskadal, og er
hann hjer á vegum kvenfjelagsins, og er að spinna á spuna-