Hlín - 01.01.1951, Blaðsíða 8
6
Hlin
Samband norðlenskra kvenna (stofnað 1914), formaður
og stofnandi Halldóra Bjarnadóttir, Akureyri. (S. N. K.
er stærst að ummáli: 7 sýslusambönd, auk Akureyrar-
kaupstaðar). Fjelagsdeildir um 70. Meðlimir 2300. Sam-
band norðlenskra kvenna hefur 9 fulltrúa á þingum K. í.
— Sambandið hefur engar tekjur af sambandsdeildum
sínum .— S. N. K. hefur árlega fundi til skiftis hjá fjelags-
deildunum, 3—4 daga í byrjun júlímánaðar. Hver sýsla
hefur sitt sjersamband (verður lítillega gerð grein fyrir
störfum þeirra síðast í þessari grein).
Sambands austfirskra kvenna (Múlasýslur). Stofnað
1927. Fjelög 18. Meðlimir rúmlega 400. Formaður, síðan
1945, Margrjet Friðriksdóttir, Seyðisfirði. Sambandið hef-
ur lagt mikla alúð við bygðasafnið og skógræktina, auk
húsmæðraskólamálsins, sem var og er aðaláhugamál hjer-
aðssambandsins. Stofnandi og formaður Sambandsins frá
byrjun, eða 17 ár, var Sigrún P. Blöndal á Hallormsstað
(dáin 1944). Beitti hún sjer með miklum dugnaði fyrir
húsmæðraskólastofnuninni og sambandskonur fylgdu
henni trúlega í því máli sem öðrum, sem hún beitti sjer
fyrir. — Fundir eru haldnir til skiftis á skólasetrunum:
Hallormsstað og Eiðum og á Egilsstöðum, einnig í
Fjörðum. — Elsta kvenfjelag Austurlands er „Kvik“ á
Seyðisfirði. Stofnað 27. okt. 1900. — Form. frá byrjun
Guðrún Gísladóttir, Seyðisfirði.
Samband sunnlenskra kvenna (stofnað 1928). Formað-
ur Halldóra Guðmundsdóttir, Miðengi í Grímsnesi (22
fjelög. Meðlimir 765), Árnes- og Rangárvallasýslur og
Vestmannaeyjar. — Fundir oftast haldnir á Selfossi hin
seinni ár um mánaðamótin maí og júní.
Efnahagur sambandanna er að sjálfsögðu nokkuð
þröngur. Fastar tekjur ekki aðrar en þær, sem Kven-
fjelagasamband íslands skiftir milli þeirra af sínum ríkis-
styrk (120 þúsund krónum) og tillög fjelaganna. — Tillög
fjelaganna í sambandssjóðina hafa hækkað allverulega á
seinni árum. Sum samböndin eru sjerstaklega dugleg að