Hlín - 01.01.1951, Qupperneq 46
44
Hlin
og raörg húsmóðirin gefur sjer ekki tíma til að líta upp
frá stritinu til þess að njóta þess, sem glatt getur hugann,
og lyft honum yfir hversdagsleikann. — Þið, sem eruð
búnar að vera hjer heilan vetur að læra hagkvæmar
vinnuaðferðir við ýmis störf, ættuð að geta skipulagt
vinnu ykkar og viðfangsefni þannig, að nokkur tími
verði afgangs til þess að snúa sjer að öðrum viðfangs-
efnum.
Þið gerið ykkur ef til vill ekki fyllilega Ijóst hve mikil
ábyrgð hvílir á ykkur sem verðandi húsmæðrum. —
Heimilin eru undirstaða hvers þjóðfjelags, og veltur á
miklu, hvernig til tekst um stofnun þeirra og allan heim-
ilisbrag. — Venjulega er það konan, sem setur mestan
svipinn á heimilið, því að þar er hennar vettvangur. Hún
verður að kunna til þeirra verka, sem henni eru ætluð, og
sýna hagsýni og velvirkni í öllu. — En það eru fleiri kost-
ir, sem þurfa að prýða góða húsmóður. Á góðu heimili
ríkir samúð og hjálpsemi, kyrð og sönn gleði eiga að vera
einkenni þess.
Það er eitt af vandámálum okkar íslendinga í dag, hve
börn og unglingar í bæjum eru mikið úti við frá heimil-
um sínum. — Það er, og á að vera, áhugamál allra for-
eldra að gera heimili sín þannig úr garði, að börnin geti
orðið þar fyrir sem bestum áhrifum í uppvextinum. Þau
áhrif endast lengi og geta orðið til ómetanlegs gagns og
blessunar fyrir hina nýju kynslóð. — Þið, sem eigið það
fyrir hendi að ala upp börn, þurfið að keppa að því að
ná sem mestum og bestum þroska, áður en þið takið ykk-
ur þann vanda á hendur. — Það getið þið best með því að
vanda framkomu ykkar og beina huga ykkar að nýtum
viðfangsefnum og keppa að því að göfga hið besta í sjálf-
um ykkur.
Það fylgir æskunni, að henni þykir gaman að skemta
sjer, það er líka eðlilegt og sjálfsagt. En skemtanir geta
gengið úr hófi fram og orðið að leiðinlegum ávana, sem
oft greiðir götuna að allskonar óreglu og jafnvel til spill-