Hlín - 01.01.1951, Page 48
46
Hlín
Það er mikið búið að gera fyrir þá æsku, sem nú er að
alast upp í landinu. — Sem endurgjald fyrir það verðið
þið í framtíðinni að standa vörð um það, sem okkur ís-
lendingum er dýrmætast, en það er frelsi okkar. — Þegar
þið erum orðnar húsfreyjur og mæður, er það ykkar að
innræta næstu kynslóð trúna á landið og framtíð þess og
varðveita íslenska tungu og siði.
Jeg óska þess af heilum hug, að þið megið verða landi
ykkar og þjóð að sem mestu liði með óeigingjörnu starfi
ykkar í framtíðinni.
Nokkur orð um uppeldismál.
Frá sambandsfundi S. E. K. (Sambandi eyfirskra kvenna)
— 24. júní 1951.
•
Engin mál ættu að standa okkur konunum nær en
uppeldismál, enda er það eitt af dagskrármálum kven-
fjelganna fyr og síðar.
Sennilega gerum við hjer á þessum fundi engar rót-
tækar tillögur í þessum efnum, en að við látum hugann
dveljá við þau um stund, tel jeg við eiga, og hef jeg
þess vegna sett þetta mál á dagskrá. — Vil jeg með þessum
orðum aðeins hefja hjer umræður, en vona að þið, sem
hafið reynslu og þekkingu, segið ykkar álit og leggið
gott til málanna.
Allir vita, hversu mjög það hvílir á húsmóðurinni, að
skapa heimilisbraginn og sjá um uppeldi barnanna, það
er hún sem með ástúð, lipurð og kjarki þarf að skapa
andrúmsloft heimilisins.
Það er ekki lítils krafist. Jeg hef oft hugsað um það, og
beðið Guð að hjálpa þeim ungu stúlkum, sem sjálfar eru
næstum börn, en eíga að taka þennan vanda á sig. Þá
kemur sjer áreiðanlega vel, að þeim fræum hafi verið