Hlín - 01.01.1951, Qupperneq 153
Hlin
151
góðir gripir. — Þessi hrausta og fagra æska, sem nú er að alast
upp í sveitum landsins, jeg treysti henni, jeg vona að hún bæti
skemtanalífið, því eins og það er nú, er það óviðunandi. Jeg
held að hún láti ekki bjóða sjer það lengur. — G.
Skagfirsk sveitakona skrifar vorið 1949:
Værir þú horfin til mín nú, myndi jeg geta sýnt þjer útskrif-
aða bók með versum og bænum, er jeg lærði barn að aldri,
sumt af móður minni og mikið af ömmu minni, þá háaldraðri.
Bænirnar ljet hún mig læra, er jeg kom heim á kvöldin frá
kvíaánum, og altaf var sjálfsagt að þylja þær orðrjett eftir röð,
og þannig lærði jeg þær reiprennandi. Mjer þótti vænt um
bænirnar mínar, en þegar fullorðinsárin komu, vildi svefninn
taka mig á arma sína, áður en jeg gat lesið þær allar. — En til
að varðveita þær frá gleymsku, þá skrifaði jeg þær allar upp í
bók, og því eru þær til. Mig langar til að fá þær vjelritaðar
við tækifæri.
Nú eru fremur skuggalegir tímar fyrir stafni. Niðurskurður
í haust, óvenjulega hart vor eftir mjög hrjóstrugan vetur og
sauðburður hafinn, en „gróður frýs, en brestur björg“, og haf-
ísinn mjög skamt frá landi. Slíkt er mjög kvíðvænlegt og hlýtur
að vekja ugg og kvíða í brjóstum þeirra, sem alt sitt eiga undir
afkomu búpeningsins. — En svo veit jeg líka að trúin, hin
ódauðlega trú, ætti að vera svo sterk, að óttinn næði ei inn-
göngu. — Ó, að allir gætu verið staðfastir sem bjarg, öruggir,
vissir um handleiðslu Drottins, þá hyrfi óttinn, en friður
Guðs fylti hjarta mannsins. Guði er ekkert ómáttugt. Hann
getur enn sent okkur gleðiríkt sumar með blessunardöggvum,
svo alt megi lifna á ný og færast í sumarskrúða.
Það eru allir frískir nema jeg, hef legið undanfama daga í
rúminu, en vona að hann ,sem sálina skóp, gefi mjer batann
sem fyrst. — Jeg elska lífið, starfið með öllum sínum skyldum
og margbreytilegu önnum, er sjaldan glaðari en þegar jeg hef
lokið dagsverkinu, og finn að jeg hef gert sem jeg gat. — A.
Úr sveit í Snæfellssýslu er skrifað sumarið 1950:
Hjeðan er alt gott að segja. Við höfum haft yndislegt sumar
og fengið góðan heyforða til vetrarins og góða garðsprettu.
Guði sje lof fyrir þetta yndislega sumar! — Af fjelagsskap okk-
ar er alt það besta að segja, okkur fjölgar heldur, ungu kon-
urnar koma í fjelagið með okkur þeim eldri, sömuleiðis þó
nokkrar af ungu stúlkunum. — Fundir eru skemtilegir lijá
okkur og samstarf mjög gott. — Nú er komið upp í sveitinni