Hlín - 01.01.1951, Blaðsíða 70
68
Hlin
mjög merkilegt erindi á þinginu um áhrif og nauðsyn
heimilisiðnaðarins fyrir uppeldi þjóðanna og efnahags-
lega afkomu þeirra.
Sýning Svíþjóðar liggur með suðurvegg og hefur svip-
að húsrúm og Finnland. — Hún sýndi muni frá heimilis-
iðnaðarfjelögunum víðsvegar um landið. — Hjer er bjart
og glæsilegt yfir að líta. — Margskonar ofin efni klæða
veggi. Alt ber vitni um mikla leikni og vandaða vinnu. —
Þarna var hörvinna af mörgum gerðum, frá fínum litlum
dúkum upp í damaskdregla. — Þarna sýndu Svíar í fyrsta
sinn á þessum sýningum sína frægu Vaðsteins-kniplinga.
— Fyrir 100—150 árum var mikið kniplað í Svíþjóð, það
lagðist niður um tíma, en er nú endurvakið. — Knipl þyk-
ir falleg vinna, en til þess að svo sje, þarf fínan þráð og
fagra vinnu. — Einnig voru þarna ullarefni af mörgum
gerðum, mjúk fín ullarteppi, húsgagnafóður, tvisttau í
kjóla, alt hvað öðru fallegra.
Þá var þarna mikið af fallegum, einföldum trjemunum,
sem var heimilisiðnaður karlmanna. — Enda hafa þeir
nóg af spýtukubbunum, Svíarnir! — Margt af þessu var
mjög einfalt smíði, eins og t. d. á smíðisgripunum frá
Móra: Hestinum og hananum. En þeir eru svo stásslegir,
af því að þeir eru svo fagurlega málaðir. — Þetta eru leik-
föng barna. — Það er engin stæling á lifandi dýrum. —
Það er söluvarningur heimilanna. — Það er ekki ætlun
heimilisiðnaðarins að hann sje listiðnaður. — Sjerfræðing-
arnir telja upp mörg vandkvæði, ef farið er inn á þá braut.
Árið 1947 seldu Svíar heimilisiðnað fyrir 11 miljónir
króna. — í Svíþjóð er heimilisiðnaðurinn viðurkendur
nauðsynlegur aðili í tekjum búsins og afkomu heimil-
anna.
Beint á móti dönsku sýningardeildinni og nokkuð inn-
ar en í miðjum skálanum, hafði verið reist 5 metra breitt
þil með dálitlum armi og lágum pöllum fyrir framan. —
Hjer var íslensku sýningunni ætlað að vera að innan-
verðu, en samísku sýningunni að utanverðu. (En Samar