Hlín - 01.01.1951, Blaðsíða 66
64
Hlin
Frjettir frá Noregi.
Erindi flntt i Rikisútvarpið haustið 1950 af
* RAGNHILDl PJETURSDÓTTUR,
Háteigi, Reykjavik.
Stjórn Kvenfjelagasambands íslands hefur óskað eftir
því, að jeg segði nokkuð frá ferð minni til Noregs í sum-
ar, og þá sjerstaklega frá Heimilisiðnaðarsýningunni á
Lillehammer.
Samkvæmt lögum Heimilisiðnaðarsambands Norður-
landa, ber að halda þing og sýningu þriðja hvert ár í ein-
hverju hinna fimm Norðurlandanna. — Árið 1948 var
þingið haldið á íslandi og þá um leið höfð sýning á heim-
ilisiðnaði. Munina komu fulltrúarnir með, eða sendu þá
á undan sjer. — Það eru einnig lög Sambandsins, að land-
ið, sem hefur þingið }:>að árið, beri kostnað af þinginu og
sýningunni. — Þetta var 7. heimilisiðnaðarþingið sem
haldið hefur verið ásamt heimilisiðnaðarsýningu. — Þessi
fjelagsskapur er, eins og svo mörg önnur fjelagasamtök og
fundir, fyrst og fremst til að auka kynni og vináttu milli
þjóðanna. — Að þessu sinni voru aðeins tvö ár milli þinga.
— En vegna hins mikla hátíðaárs Osloborgar óskuðu
Norðmenn eftir að þingið og sýningin færðist fram um
eitt ár. Var það og rjettmæt ósk, svo mikið höfðu þeir gert
til þess að 900 ára afmæli borgarinnar yrði veglegt og fjöl-
þætt, og öllum þeim mörgu, er heimsóttu Noreg í sumar,
mjög minnisstætt. — Þingið og sýningin voru haldin á
Lillehammer þar sem hinar breiðu byggðir Noregs, Heið-
mörkin og Guðbrandsdalirnir, mætast. — Á þeim vega-
mótum er þessi yndislegi bær, sem hefur hlotið nafnbót-
ina „Perlan við Mjösen“.
Við vorum 10, íslendingarnir, sem vorum komin til
þingsetunnar. Fulltrúar frá íslandi voru: — Halldóra
Bjarnadóttir, Ragnhildur Pjetursdóttir og Stefán Jóns-
son, teiknari, sem sá um uppsetningu á íslensku mun-
unum.