Hlín - 01.01.1951, Page 12
1Ó
HUn
Árið 1948 gekk Kvenfjelagasamband íslands í Hús-
mæðrabandalag norrænna kvenna, og sendi 7 fulltrúa á
þing Sambandsins, sem haldið var á Litlahamri í Noregi
1950.
Ef maður ætti að telja upp alt það sem kvenfjelögin
hafa beitt sjer fyrir þessi 50 ár yrði það löng saga. — Sam-
tök hafa þau mörg haft með ungmenna- og hreppsfjelög-
um um ýmsa hluti, meðal annars byggingu samkomu-
húsa, sem er sameiginlegt áhugamál allra þessara fjelaga.
Samvinna hefur jafnan verið hin besta milli þeirra hlut-
aðeigenda. Þá hafa þessir aðiljar haft samvinnu um garð-
rækt og trjáreiti. Mörg eiga fjelögin þarfa og góða hluti
í sameiningu:'Trjónavjelar, spunavjelar og vefstóla. —
Nær því öll kvenfjelög víðsvegar um landið hafa tekið
sjer fyrir hendur að prýða kirkjur sínar og kirkjugarða.
— Sum starfrækja barnaheimili og dagheimili, einnig
sunnudagaskóla, hafa lagt stórfje í kVennaskóla, heilsu-
liæli, sjúkrahús og elliheimili, starfrækja ljósböð, hafa
haft námsskeið í hjálp í viðlögum o. s. frv. Þá hafa nokk-
ur fjelög og jafnvel heil sambönd komið sjer upp safni af
góðum handavinnugripum (Samb. norðlenskra kvenna),
hefur það orðið að góðum notum til sýninga víðsvegar
um heim. (Svona safn ættu sem flest Sambönd að eiga). —
Þau munu vera nær óteljandi verklegu námsskeiðin, bæði
í matreiðslu og handavinnu, sem kvenfjelögin víðsvegar
um landið hafa gengist fyrir þessi 50 ár, sem þau hafa
starfað. Einnig mikill fjöldi sýninga af ýmsu tagi. — Alt
hefur þetta gert mikið og gott gagn til aukins þroska og
smekkvísi. — Þá hafa mörg fjelög safnað fje fyrir kvenna-
heimilið Hallveigarstaði, sem í ráði er að reisa í Reykja-
vík. — Þau hafa stutt kvennablöðin með ráðum og dáð.
Hefur „Hlín“ t. d. notið góðrar afgreiðslu hjá þeim um
32 ára skeið.
Til fjáröflunar hafa verið farnar ýmsar leiðir: Sjónleik-
ir, tombólur, basarar, kaffisala í rjettum, söngsamkomur,
erindaflutningur o. fl. o. fl. Alt hefur þetta um leið orðið