Hlín - 01.01.1951, Blaðsíða 141
Hlin
139
Sitt af hverju.
Ávarp.
Flutt á Sambandsfundi norðlenskra kvenna á Akureyri
5. júlí 1951 af formanni Sambandsins, Halldóru Bjarnadóttur.
Góðu fulltrúar og gestir!
Jeg óska ykkur allar hjartanlega velkomnar til þessa 38. sam-
bandsfundar. Það er ánægjulegt að við getum nú enn einusinni
mætst hjer í fögru veðri á fögrum stað í höfuðstað Norðurlands,
þar sem S. N. K. var stofnað fyrir 37 árum (1914). Við þökkum
kærlega hjálp kvenfjelaganna hjer á staðnum, „Framtíðinni" og
„Hlíf“, sem hafa búið okkur svo vistlegt heimili til fundarhalds
og mötuneytis hjer í þessum fagra Húsmæðraskóla Akureyrar,
einnig útvegun gistingar í hinu veglega heimavistarhúsi Menta-
skólans. — Bestu þakkir fyrir þetta alt.
Jeg óska og vona, að við getum haft bæði gagn og gaman af
því að koma hjer saman til skrafs og ráðagerða, að minsta kosti
til kynningar, það hefur altaf verið aðalmarkmið þessa funda,
á líka að miða að því að vera dálítill hvíldartími fyrir konurnar,
þessvegna, meðfram, höfum við fundartímann þetta langan (4
daga). Það er líka altaf fróðlegt og skemtilegt að heyra hvað
gerist hjá fjelagsdeildunum. Við lærum hver af annari.
Við vitum að það er mikið starfað í þessum 70 fjelagsdeildum
S. N. K., og þrátt fyrir talsvert ólík viðhorf, í bæjum og sveit-
um, hefur samvinna altaf verið ágæt, engir árekstrar þessi 37
ár. Kvenfjelögin hafa notið virðingar og vinsemdar fyrir fram-
kvæmdir sínar, sem allar ganga í siðbætandi framfaraátt.
Megi fjelagsskapurinn jafnan hafa sem mest ag best áhrif í
þjóðbætandi átt á sem flestum sviðum.
Mikið hefur áunnist þessi ár, sem hafa verið svo stórkost-
legum breytingum háð, en konurnar og framkoma þeirra finst
mjer, sem betur fer, svipuð: Hæglát, virðuleg og kurteis. Ósk-
andi að þessar dygðir megi jafnan einkenna íslenskar konur. —
En íslenska konan hefur þroskast fjelagslega þessi ár, orðið
frjálsmannlegri í framkomu sinni á fundum, vanist við ræðu-
höld, án þess að verða mærðarfullar. — Jeg hef mikla trú á ís-
lensku konunum, þau 40 ár, sem jeg hef unnið með þeim, hafa
staðfest þá skoðun.