Hlín - 01.01.1951, Qupperneq 105
Hlin
103
að til að ráðist var í frekari framkvæmdir til endurbóta á
Safamýri.
Árið 1930 stofnuðu hlutaðeigendur hennar „Land-
þurkunarfjelag Safamýrar“ með því ákveðna markmiði
að ræsa, þurka og veita á mýrina.
Þeim, sem kunnugir voru mýrinni og öllum aðstæðum
þar, var vel ljóst, að þessar fyrirhuguðu framkvæmdir út-
heimtu nákvæmar mælingar, mikla vinnu og mikið fje. —
Landþurkunarfjelagið leitaði til Búnaðárfjelags íslands
um aðstoð og leiðbeiningar. Það brást vel við þeirri mála-
leitun og lánaði Ásgeir L. Jónsson, ráðunaut, til að ann-
ast allar mælingar og hafa yfirumsjón með verkinu. Það
útvegaði og lánaði fljótandi skruðgröfu, sem notuð hafði
verið norður í Skagafirði. Með henni var unnið 1933—
1937 við að grafa upp og stækka gamla Flóðakelduskurð-
inn með norðurjaðri mýrarinnar, úr Ytri-Rangá, hjá
Bjólu, suðvestur í Frakkavatn, 8—9 km. á lengd. Hann
er bæði þurkskurður og áveituskurður úrRangá. í honum
er flóðgátt hjá ánni og þrjár stíflur. —- Samhliða því að
þessi skurður var gerður, voru aðrir skurðir handgrafnir
annarstaðar í mýrinni og byrjað á að hlaða flóðgarða í
henni.
Framkvæmdir þessar hafa borið nokkurn árangur, en
hvergi nærri verið fullnægjandi. Enda var öllum vitan-
legt, að mikils þurfti með til þess að ræsa mýrina svo
að verulegu gagni kæmi. — Fyrir þremur árurn keyptu
Þykkbæingar skurðgröfu til þess að grafa með í Safamýri.
Með henni hefur verið unnið þar í tvö s. 1. sumur, með
góðum afköstum, við að grafa upp gömlu handgröfnu
skurðina og stækka {rá. í þeim skurðum eru 6 stíflur.
— Áfallinn kostnaður við skurðgröftinn, stíflurnar og
annað tilheyrandi þurkun mýrarinnar, var við árslok 1950
kr. 226.600.00. — Vantar þó rnikið á að því verki sje lokið
enn. Við þetta bætist vinna sú, er farið hefur í að lilaða
flóðgarða þá, sem búið er að hlaða, og þá sem hlaða þarf.
Þrátt fyrir allan þann kostnað, sem lagður hefur verið