Hlín - 01.01.1951, Blaðsíða 122
120
Hlín
sendi Sambandinu tveggja ára? Jeg býst við að það sje
mikið undir hugarfari okkar sjálfra komið, hvernig við
metum það, en áfram hefur verið haldið og reynt að efla
og þroska fjelagssamtökin.
Jeg man, að mjer var þungt í huga, er jeg var kosin
formaður á Þingeyri fyrir 9 árum. Jeg hafði litla trú á
því, að mjer tækist að rækja þetta starf eins og vera bar.
En, er jeg hugsaði málið nánar, fanst mjer það vera bót í
máli, að það var frú Estíva, fráfarandi formaður, sem átti
uppástungu og stuðlaði að formannskjöri mínu. Jeg hef
því reynt að starfa eftir bestu getu, og svo er annara að
dæma, hvernig verk mitt hefur verið af hendi leyst. — Þið,
góðu konur, hafið altaf sýnt mjer mikinn skilning og vel-
vild, sem jeg þakka.
Jeg hef þá lítið eitt rakið sögu Sambandsins þessi 20 ár
og aðeins stiklað á stóru. Jeg vil enda þessi orð mín með
því að þakka þeim konum, sem oftast hafa setið þessa
fundi, fyrir samstarfið, mjer finst vera kominn einhver
tengiliður á milli okkar eftir þessa samveru.
Svo óska jeg okkar fjelagssamtökum allra heilla og
vænti þess að Samband vestfirskra kvenna vaxi og eflist
á komandi árum.
Sigríður Guðmundsdóttir.
Vermdu röðull, visna rinda,
vermdu kalda fjallatinda,
vermdu grös, þó vanti skjólin,
vermdu gömlu höfuðbólin.
Vermdu glugga vota, kalda,
vermdu þá, sem stríðsins gjalda,
vermdu hjörtu, er vonlaus líða,
vermdu, Drottinn, ættjörð fríða.
J. S.