Hlín - 01.01.1951, Blaðsíða 84
82
Hlin
situr þarna og spinnur. Hún hefur iðkað spunann síðan
hún var 8 ára.
Það fylgir sögunni, að á stríðsárunum hefðu allir gaml-
ir rokkar verið dregnir fram á Jótlandi og notaðir.
í Svíþjóð eru það landshöfðingjarnir og frúr þeirra,
sem eru talin sjálfsögð að starfa að framgangi heimilis-
iðnaðarins í ljeninu. Þau fá konur og karla í bæjum og
sveitum í lið með sjer og verður mikið ágengt.
Alt þetta starf er unnið. sem þegnskylduvinna. — Það
er lóðið!
Selbu, bygð á austurströnd Noregs, skarar fram úr með
framleiðslu á söluvarningi úr ull. — Það er talið að unnið
sje úr um 8 þúsund kg. af bandi árlega í bygðarlaginu. —
Það eru aðallega tvíbandaðir belgvetlingar, fremur gróf-
ir, sem framleiddir eru. — í Selbu eru um 4800 manns.
Það er talið, að um það bil helmingur hafi prjónaskapinn
sem aukaatvinnu, eða um 1000 heimili.
Allsstaðar er höfð sama aðferðin: Bandið afhent frá
miðstöðinni þeim, sem vilja prjóna, með góðum leiðbein-
ingum. Vinnulaun greidd þar við móttöku prjónlesins. —
Miðstöðin sjer um söluna. — Alt er þetta verksmiðjuband.
Þessi aðferð hefur líka verið viðhöfð í heimilisiðnaðar-
fjelögum hjer á landi, þó í smærri stíl hafi verið. Fram-
leiðsla á grófum leistum aðallega, einnig nokkuð af sjó-
vettlingum og peysum úr sama efni. Á Norðurlandi
(Sauðárkróki og Akureyri). Á Vesturlandi (ísafirði) og á
Austurlandi (Seyðisfirði, Norðfirði og Fáskrúðsfrði). —
Hvergi hefur verið farið út fyrir bæina. — Allsstaðar hef-
ur vinnan frá fjelögunum fengið gott orð á sig, enda verið
undir ströngu eftirliti. Drýgstur hefur Sauðárkrókur orð-
ið, þar hefur starfsemin aldrei fallið niður í 16 ár. —
Víðast hvar hefur toglopinn verið spunninn á heimilun-
um og þveginn líka af þeim, sem ástæður hafa haft til
þeirra hluta. — Þetta hefur verið þægileg ígripavinna,
sem mörgum hefur komið vel.
Ekki dettur nágrannaþjóðum okkar í hug, að heimilis-