Hlín - 01.01.1951, Blaðsíða 120
118
Hlin
orðin 14 með 760 meðlimum. — Þetta hefur áunnist með
þolinmæði og þrautseigju, enda sum fjelögin verið stofn-
uð á þessu tímabili.
Fundirnir hafa verið haldnir einu sinni á ári til skiftis
á þessum stöðum: ísafrði sex. sinnum, Þingeyri þrisvar,
Flateyri þrisvar, Bolungavík tvisvar, Suðureyri tvisvar,
Hnífsdal einu sinni, Reyjanesi einu sinni, Súðavík einu
sinni. — Kvenfjelögin hafa sjeð um undirbúning fund-
anna og risnu fulltrúa. Jeg flyt fjelögunum þakkir fyrir
alla fyrirgreiðslu fundanna. Það er áreiðanlega mikil
hlunnindi, sem okkar Samband nýtur fram yfir mörg
önnur, að skifta fundunum á fjelögin. Hefur móttaka
fundargesta ávalt verið hin ánægjulegasta og fjelögun-
um til sóma.
Margvísleg mál hafa verið rædd á fundunum, framan
af árum nlun hafa verið fastákveðið að ræða um heimilis-
iðnað, húsmæðrafræðslu og heilbrigðismál. Nú er heim-
ilisiðnaðarmálið mikið komið yfir á saumanámskeiðin,
sem fjelögin reyna altaf að hafa hvert hjá sjer með styrk
frá Sambandinu, sje hægt að fá kennara, einnig stundum
vefnaðarnámskeið. — Húsmæðrafræðslan er mikið kornin
yfir á húsmæðraskólana, sem hafa fjölgað verulega á þess-
um 20 árum, einnig hefur starfað á Sambandssvæðinu
sendikennari í matreiðslu frá Kvenfjelagasambandi ís-
lands. — Þá voru það lijúkrunarmálin, sem oftast voru
rædd á þeim grundvelli, að fjelögin hefðu hjálparstúlku
í veikindaförföllum heimilanna. Sum kvenfjelög hafa
getað komið því á hjá sjer. — Oftast hafa verið flutt fræð-
andi erindi á fundunum af hæfum mönnum.
Fjárhagur Sambandsins var fremur þröngur framan af,
þar sem fjelögin borguðu aðeins 20 aura af hverjum með-
lim í Sambandssjóðinn. Dálítinn ríkisstyrk fjekk Sam-
bandið, einnig lítið eitt frá Norður- og Vestur-ísafjarðar-
sýslum og um tíma dálítið frá Búnaðarsambandi Vest-
fjarða.
Sambandið hefur eignast sjóð, gefinn af Kristni Guð-