Hlín - 01.01.1951, Síða 34
32
Hlín
arnir fornu. Orðstír Kristveigar frá Skógum deyr ekki.
Börn hennar og aðrir afkomendur halda minningu
hennar í heiðri. Systkini hennar gleyma því ekki með hví-
líkum hetjudug hún annaðist þau, þegar þau stóðu for-
eldralaus á barnsaldri, en hún var sjálf lítið yfir ferm-
ingu. Fjöldinn, en fyrst og fremst hjú hennar og gestir,
munu seint gleyma rausn og umhyggju húsmóðurinnar
í Skógum.
Börn þeirra Kristveigar Björnsdóttur og Gunnars
Árnasonar voru þessi:
1. Rannveig; gift Birni Kristjánssyni, fyrrv. alþingism.
og kaupfjelagsstjóra á Kópaskeri.
2. Björn; skrifstofumaður í Reykjavík, kvæntur Guð-
rúnu Kristjánsdóttur frá Víkingavatni.
3. Sigurveig; gift síra Sveini Víking, skrifstofustjóra
biskups.
4. Arnþrúður; gift Baldri Öxdal, hroppstjóra að Sig-
túnum í Öxarfirði.
5. Sigurður; skólastjóri á Húsavík, kvæntur Guðrúnu
Karlsdóttur, Finnbogasonar, skólastjóra á Seyðisfirði.
6. Árni; bóndi í Skógum, kvæntur Sigríði Guðmunds-
dóttur frá Vestara-Landi, dáin 1937.
7. Jón Kristján; dó í skóla 1938.
8. Þórhalla; gift Sigurði Jóhannessyni bankaritara í
Reykjavík.
9. Óli; verslunarmaður, Kópaskeri.
Ennfremur ólu þau Kristveig og Gunnar upp tvær
fósturdætur — Þær eru:
1. Sigríður Guðmundsdóttir frá Vestara-Landi. Giftist
Árna, syni þeirra.
2. Kristveig Jónsdóttir frá Klifshaga. Hefur ætíð fylgt
fjölskyldunni, og er nú bústýra hennar á Kópaskeri.
Barnabörn Kristveigar og Gunnars eru nú yfir tuttugu,
en bamabamabörnin fimm.
Einar Sigfússon, Ærlæk.