Hlín - 01.01.1951, Blaðsíða 132
130
Hlin
njóta leiðbeiningar, til að notfæra sjer rjett gjafir lífsins,
og geta staðið sem jafnast að vígi á framfarabraut.
Mig langar til að segja fáein orð við ykkur, nemendur.
— Tíminn hefur styst, sem ykkur var ætlaður hjer í byrj-
un. Þið vissuð víst ekki annað, flestar ykkar, þegar þið
sóttuð um skólann, en að hjer yrði 4 mánaða kensla, þá
átti að byrja með nóvember. En Kvenfjelagasamband ís-
lands, sem leggur okkur til kenslukonuna, þótti hentugra
að haga starfi þannig, að hún kæmi ekki til okkar fyr en
eftir jól, og hafa svo kensluna til marsloka. Þetta sam-
þyktum við í skólanefndinni, þar sem hátíðarnar tóku þá
hálfan mánuð frá kenslu hvort sem var. En svo kemur
þessi bið vegna tíðarfarsins, sem enginn hefur getað ráðið
við. En jeg vona að alt gangi nú greiðlega, og að þið not-
ið nú með því meiri áhuga og ástundun þennan tíma sem
gefst. — Þið hafið hjer 4 kennara, svo þið fáið sannarlega
tækifæri til að nota vel tímann og tilbreytni getur orðið í
námi.
Kennarinn, Guðrún Jensdóttir, er viðurkend góð
kenslukona í matreiðslunni og mjög fær í sinni grein, er
þar að auki mjög vel mentuð kona. Jeg vona að ykkur og
henni falli vel saman og að alt verði ljett og ánægjulegt. —
Okkur þótti nauðsynlegt að þið gætuð líka fengið tilsögn
í handavinnu til ígripa í tómstundum. Kristjana kennari
gerir vel að taka hana að sjer. Handavinnukensla hennar
í barnaskóla, og sýningar frá þeim, sýna hennar hæfni.
Svo þarf ekki að orðlengja það, að hjer eru góðir
kenslukraftar, þar sem prestur og læknir standa að bók-
legri fræðslu. Það er lán að hafa þá hjer á staðnum, það á
sinn góða þátt í því að koma þessum skóla af stað.
Mjer finst mikilsvert að kristindómsfræðsla sje í skól-
um, þá ekki síst í húsmæðraskólum. Milii skóla og kirkju
á.að vera hin nánasta samvinna. Það á vei við, þar sem
hægt er að koma því við, að prestarnir kenni þá námsgrein
í skólum, það ætti að geta fært nemendurna nær kirkj-
unni. Jeg treysti því, að þið notið nú tækifærið og komið