Hlín - 01.01.1951, Blaðsíða 131
Hlin
129
í sögum og sögnum höfum við heyrt það, að ungar
stúlkur voru sendar í klaustur til náms. Og hjer var
nunnuklaustur. Fyrir 400 árum lagðist það niður. En
hjer á að rísa í framtíðinni húsmæðraskóli. — En nú segja
sumir, að húsmæðraskólarnir sjeu orðnir nógu margir í
landinu. Svo kann að vera í bili, en það býst jeg við að
dýrtíð valdi, að þeir hafa í haust ekki allir verið fullskip-
aðir, því nóg mun vera af ungum stúlkum á þeim aldri,
er þörf hefðu fyrir fræðslu, er þeir skólar veita. — Enn
eru 3 sýslur samliggjandi hjer á Suðurlandi, sem engan
slíkan skóla hafa. — Hjeraðsskólinn í Skógum er nú ris-
inn upp með miklum myndarbrag til menningar auka
fyrir þessar sýslur. — Sú kemur tíð, að húsmæði'askólinn
rís upp hjer líka, því þessi staður hefur nú þegar verið
viðurkendur ákjósanlegur. En við vitum, að slíkt verður
ekki á næstu árum, við eygjum lijer aðeins takmark að
keppa að.
Við sýnum alvöru okkar með því að byrja nú í smáum
stíl, við þau skilyrði, sem fyrir hendi eru. — Eftir að kven-
fjelögin fóru að starfá hjer í sýslu, voru námskeið haldin
til skiftis innan kvenfjelaganna með góðum árangri. En
nú á síðustu árum liafa þau ekki getað komist á vegna
ýmsra örðugleika, en þetta var sú afturför, sem ekki mátti
við una. — Nú sameinum við þetta á einum stað fyrir sýsl-
una. — Þó að hjer þyki ýmislegt vanta, ef miða á við ný-
tísku skóla, þá mun óvíða í sveit vera hægt að koma á
námskeiði við fleiri góð skilyrði. — Jeg efast líka um, að
stúlkum sje hollara að búa við alt sem fullkomnast í skól-
um. Getur ekki farið svo, að þeim finnist, þegar heim er
komið aftur, þá enn erfiðari aðstaða að una við? — En við
megum ekki missa unga fólkið frá sveitaheimilunum, eins
og hefur tíðkast undanfarið. — Því finst mjer stórt skilyrði
að Iiafa skóla heima í sveitinni til alþýðumentunar. —
Vitanlega á mentunin að miða að því, að skapa betri að-
stöðu til sjálfsbjargar, bættra lífskjara og þæginda, til
betra og fegurra lífs. Þessvegna þurfa sem allra flestir að
9