Hlín - 01.01.1951, Page 114
112
Hlín
línu sinni og settu þeir svo yfir flóann og náðu landi á
Smáhömrum.
A þessum árum, er Guðbjörg Björnsdóttir, móðir Guð-
bjargar Jónsdóttur á Broddanesi og þeirra systkina, var
á Broddanesi og Matthildur á Smáhömrum, var sjósókn
af báðum þeim stöðum mikil alt árið urn kring á vetrum.
Á fyrstu uppvaxtarárum Guðbjargar Björnsdóttur, og
fyrstu búskaparárum hennar, voru gerð út tvo skip til há-
karlaveiða norður á Gjögur, einnig stundaðar fiskveiðar
haustmánuðina fram til jóla heiman frá Broddanesi, auk
kaupstaðaferða ('Borðeyrar, Reykjarfjarðar, Skeljavíkur)
og við nytjan hlunnindanna.
Frá Smáhömrum var sjósókn mikil: Hákarlaveiðar á
vetrum fram um s. 1. aldamót, bæði á Gjögur og einnig út
á SteingTÍmsfjörð á haustvertíð. Rjeru þaðan 3—5 bátar
og var sjórinn sóttur fast.
Guðbjörg Björnsdóttir andaðist á Broddanesi árið
1915, þá 91 árs að aldri, mun hafa dvalið þar um 80 ár.
Fyrstu 7 búskaparár sín var hún á Smáhömrum ('saman-
ber „Gamlar glæður“ G. J.). En á fyrsta vetrardag haust-
ið 1917 fórst bátur frá Broddanesi, var að koma úr verinu
frá Þorpum við Steingrímsfjörð. Formaður Bjarni Björns-
son, húsmaður á Broddanesi, hásetar þrír, heimilismenn
í Fells- og Óspakseyrarhreppum.
Matthildur á Smáhömrum ljest 17. jan. 1950, rúmlega
102 ára gömul, hafði dvalið á Smáhömrum um 80 ár.
Þann 7. des. 1950 fórust sonarsynir hennar, Björn og
Guðmundur frá Heydalsá, ásamt þriðja manni.
Lesendur, ef einhverjir verða, draga sínar ályktanir.
Frásögnin er rjett.
Guðbrandur Benediktsson, Broddanesi.