Hlín - 01.01.1951, Side 75
Hlin 73
ig talaði hún um togið, og sýndi hvernig við kembum það
og lippum undir spuna.
Nú var aðeins eftir fyrirlestur danska heimilisiðnaðar-
foringjans: Um nauðsyn heimilisiðnaðarins fyrir afkomu
heimilanna, og til varnar allskonar þjóðfjelagsspillingu.
— Þessi fyrirlestur var mjög lærdómsríkur og átti góðan
hljómgrunn hjá þingheimi.
Þá var eftir að ákveða hvar Heimilishiðnaðarþingið
ætti að vera næst. — Svend Möller, fulltrúi Dana, bauð
því landvist í Danmörku. Þar verður það haldið eftir þrjú
ár. — Svend Möller óskaði, að sem flestir af gömlu heim-
ilisiðnaðarforingjunum kæmu til Danmerkur. — Elstu
foringjarnir þarna: Halldóra frá íslandi og Anna frá
Finnlandi horfðust í augu. Loks sagði Halklóra með sín-
um alkunna krafti og áhuga: „Eigum við að fara til Dan-
merkur, Anna!“ — Það var klappað um allan salinn. —
Þessir foringjar eru aðeins 76 ára, en áhuginn fyrir þessu
mikla þjóðmenningarmáli var enn í fullu fjöri.
Um kvöldið fjölmenti þingheimur á fornminjastað
bæjarins Maihaugen. — 29. júlí er talinn dánardagur Ól-
afs helga, er hann haldinn hátíðlegur víða í Noregi. —
Norðmenn kalla þessa hátíð Olsok. — Við mundum kalla
hana Ólafsmessu. — Þarna var mjög margt til skemtunar,
söngur, uppelstur og fyrirlestur um hinn mikla forn-
minjasafnara Sandvik, sem byrjaði að safna gömlu húsun-
um og mununum á Maihaugen. — Hátíðinni lauk með
messu í gömlu kirkjunni og brennu á vatninu.
Að lokum vil jeg flytja kveðjur frá Gerpstad skólastjóra
til sendaherra Norðmanna hjer, hr. Andersen-Ryst. —
Fyrst og fremst það, að plönturnar, sem hann fjekk úr
garði sendiherrans, hafi komið vel til og lifi góðu lífi, og
að blóðbergið hafi blómstrað tvisvar í sumar. — Ennfrem-
ur bað hann mig að skila til sendiherrans, að ef hann
gerði aftur úr leiðangur, til að planta skógi á íslandi, að
lofa sjer þá að vera foringi þeirrar ferðar.