Hlín - 01.01.1951, Blaðsíða 133
Hlin
131
til kirkju okkar, þegar messað verður, þennan tíma, sem
þið eigið hjer dvöl.
Svo er læknirinn við hendina, þegar með þarf. En nú
ætlar hann fyrst og fremst að kenna ykkur að vernda
heilsuna, kenna ykkur heilsufræði, barnasálarfræði o. fl.
í þessu sambandi langar mig til að tilfæra hjer stutta grein
úr bókinni „í samræmi við eilífðina":
„Sannur læknir og faðir hins ókomna tíma mun minna
fást við að lækna líkamann með meðölum, en rneira við
J^að að lækna hugarfarið með frumreglum. Mæður fram-
tíðarinnar munu kenna börnum sínum að sefa sóttveiki
reiðinnar, hatursins og illmenskunnar með albótalyfinu
mikla — elskunni. — Læknar framtíðarinnar munu kenna
mönnum að glæða glaðlyndi, velvild og göfuga starfsemi,
sem styrkjandi lyf fyrir heilsuna og hjartað, og sýna Jreim
fram á, að gleði hjartans er hið besta læknisilyf."
Jeg þekki engan læknir nær því en Esra Pjetursson að
vilja liaga fræðslu sinni eitthvað á Jressa leið.
Guð blessi samstarf kennara og nemenda og heimil-
anna hjer og skólans!
Gyðriður Pálsdóttir, Seglbúðum í Landbroti.
Úr Kirkjubæjarhreppi á Síðu sumarið 1950:
Sambandsfundur okkar var hjer á Klaustri í vor. Að honum
loknum h'öfðum við samsæti til heiðurs Kristjönu Jónsdóttur,
kennara, sem er búin að vera kennari hjer í hrepp í 20 ár, en
alls er hún búin að vera barnakennari í 25 ár og átti 50 ára af-
mæli í sumar, svo þetta voru merk tímamót í æfi hennar. —
Kvenfjelag Kirkjubæjarhrepps stóð að samsætinu og hrepps-
búar yfirleitt, er færðu henni vandaðan lampa áfastan sauma-
borði, var það stofuprýði. Ræður voru fluttar þar og var sam-
sætið fjölment og ánægjulegt.
9»