Hlín - 01.01.1951, Blaðsíða 126
124
Hlín
trúmál. Reynslan hafði sýnt, að þau hitamál gátu eyði-
lagt og eytt fundartíma til einkis. — Þetta ákvæði tel jeg
hafa verið heppilegt, því Sambandinu var ætlað að verða
fyrir allar konur, hvar í flokki sem þær stóðu í þessum
málum. — Á þessum fundi var einnig ákveðin samvinna
um húsmæðrafræðslu, heimilisiðnað, garðyrkju o. fl., sem
laut að framförum á þjóðlegum grundvelli. — Fundur
þessi fór vel og greiðlega fram, stjórn var kosin og lögin
voru samþykt.
Fyrsta stjórnin var þannig skipuð: Formaður: Herdís
Jakobsdóttir, Eyrarbakka. — Ritari: Guðrún Sigurðar-
dóttir, Stokkseyri. — Gjaldkeri: Jarþrúður Einarsdóttir,
Eyrarbakka.
Næsta vor var fyrsti ársfundur haldinn. Fundarstaður-
inn var Þjórsártún. Þar var ánægjulegt að vera, þó húsa-
kynni væru ekki sem hentugust bættu gestgjafahjónin það
upp með öllu því góða, sem þau ljetu okkur í tje. — Utan
húsa var þá hinn landskunni lysti- og trjágarður í mesta
skrúða. Einnig er kunnugt hið tilkomumikla útsýni frá
Þjórsártúni yfir Suðurlandsundirlendið. — Alt þetta
ásamt ánægjunni af samstarfinu á fundinum, gerði kon-
urnar glaðar og frjálsar og milli þeirra ríkti hlýr hugur
og örugg vissa um heillavænlegt samstarf.
Frá byrjun hreyfði sjer sú skoðun, að minsta kosti hjá
stjórn S. S. K., að stefna bæri að því að fá húsmæðraskóla á
sambandssvæðið, en þar sem útlit var fyrir, að það tæki
langan tíma, var strax horfið að því að koma upp nám-
skeiðum, sem haldin yrðu á vegum fjelaganna. — Þetta
lánaðist prýðilega. — Saumanámskeið voru framkvæmd í
stórum stíl og þóttu ágætis hjálp. — Vjelprjónanámskeið
voru mörg fyrstu árin, einnig hjúkrunar- (rauðakross)
námskeið, matreiðslunámskeið og garðyrkjuleiðbeining-
ar. Störfuðu ýmsar góðar garðyrkjukonur á vegum Sam-
bandsins víðsvegar um sambandssvæðið, einnig voru oft
stutt grænmetisnámskeið á haustin.
Þareð hjer á Suðurlandsundirlendinu var enginn hús-