Hlín - 01.01.1951, Page 147
Hlin
145
lenska þjóðin meðal annars þokast á leið til meiri sjálfsvirð-
ingar. — Sje þetta rjettur skilningur, á það skal jeg engan dóm
leggja, mundi þá ekki insta orsökin vera sú, að slíkir eru töfrar
íslands, og slík er saga þjóðarinnar, sem landið hefur bygt, að
það vekur börnum sínum þær kendir, þá ást, sem brennur aldr-
ei heitar, en þegar þau eru horfin ættjarðarströndum.
Þá ósk vil jeg að lokum leyfa mjer að bera fram, að íslend-
ingar, hvar í heimi sem þeir eru, megi í framtíðinni bera gæfu
til þess að takast í hendur sem vinir og samherjar, styðja hvem
annan til alls góðs, að þeir í sameiningu megi ná hámarki
mannlegra dygða.
Guð blessi ísland og íslendinga!
KVEÐJA FRA ISLANDI.
Góðu landar vestanhafs!
Oft hugsa jeg til ykkar með þakklæti og vinarhug, síðan jeg
heimsótti ykkur um árið, og naut ágætrar gestrisni ykkar og
fyrirgreiðslu á alla lund. Mjer er öll sú ferð ógleymanleg og
ánægjuleg. — Jeg fylgist með öllu hjá ykkur, sjerstaklega með
atbeina ykkar ágætu blaða.
Fyrir nokkrum árum reis á stofn skóli hjer handan við Eyja-
fjörð, sem við köllum Tóvinnuskóla. Það er lítil tilraun að við-
halda ullarvinnunni, sýna hvað hægt er að gera úr íslensku
ullinni, reyna að láta ekki íslensku listvinnuna hverfa, sem all-
ar þjóðir dást að. Flestar þjóðir heims leggja nú kapp á að láta
ekki þjóðleg verðmæti glatast.
Þessi litli skóli hefur nú starfað í 5 ár. — Lítill er hann, aðeins
8 nemendur, því við höfum valið honum stað á sveitaheimili,
sem hefur góð húsakynni. Það álít jeg mikinn kost. — Bifreiða-
samband við Akureyri daglega, hálftíma ferð. — Skólinn starf-
ar aðeins vetrarmánuðina (frá 20. okt. til 20. apríl). Kenslu-
greinar tóvinna og vefnaður.
Það varð að ráði fyrir þrem árum að bjóða íslenskri stúlku
vestanhafs ókeypis skólavist, og hlaut María Skúladóttir Sig-
fússon, frá Lundar, vistina. Hún var ágætur fulltrúi fyrir ykk-
ar hönd, vinsæl af öllum.
Nú er það ósk mín og von, að við fáum árlega íslenska stúlku
vestan að frá ykkur. — Kjörin eru þau sömu: Ókeypis skóla-
vist. Minnist þessa, góðu landar! Það á að styrkja bandið. Það
á að vera lítill þakklætisvottur fyrir alla vinsemd í okkar garð.
— Látið blöðin bera boð á milli.
Með kærri kveðju og bestu óskum. Halldóra Bjamadóttir.
10