Hlín - 01.01.1951, Page 95
Hlín
93
Líkt og barn fagnar blómi á vori,
eins er þín kynning öllum mæt.
Vel sje þeim, sem vel og lengi,
starfað hafa með sæmd og prýði,
líknað sjúkum, særðan huggað,
blessun breitt yfir börn og elli.
Alt eru þetta eðliskostir
hj artaprúðrar h öfðingsmeyj ar.
Gulli betra er göfugt hjarta,
ástúð mild, en yfirlæti.
Sjálf ertu fædd á sólarvegum,
sól ert þú samferðamönnum.
Sólarherrann þið sjálfur blessi.
Sigríður, lifðu sextug heil!
Birna Ólafsclóttir, Birnufelli, Múlasýslu.
---------------------------
BÆN.
Blessa landsins býli og hjalla,
blessa þá, sem til þín kalla,
blessa landið bjarta, kalda,
blessa það um aldir alda.
Sendu björg frá sævaröldum,
sendu blessun veikum höldum,
sendu kraft, þá sjúk við föllum.
Sendu frið og styrk oss öllum
J. S.