Hlín - 01.01.1951, Page 142
140
Hlin
Já, jeg treysti konunum, þær standa lika á traustum grund-
velli flestar: Guðstraustinu. — Jeg hef fengið mörg brjef frá
konum á sambandssvæðinu á þessum erfiða vetri og að honum
loknum, og öll bera þau með sjer, að konurnar hafa beðið, heitt
og innilega, fyrir mönnum og skepnum — og þegar batinn kom
lofað Guð hjartanlega. Þetta hefur eflaust fjöldinn allur af
landsmönnum gert, en altaf hef jeg trú á að konan standi guð-
dóminum næst.
Jeg treysti konunum líka gagnvart hinu alvarlega útliti um
fjárhag ríkisins. — Það hefur oft verið sagt, að mikill meiri
hluti verðmætis fari gegnum hendur kvenna. Hver einstakling-
ur hefur hjer mikla ábyrgð. Konurnar, eldi’i sem yngri, þurfa
að gera sjer ljóst, hver voði er á ferð fyrir sjálfstæði landsins,
ef fjárhagurinn er í óreiðu. Mánaðarlega heyrum við um
milljóna halla á út- og innflutningi.
Það er náttúrlega gaman að geta veitt sjer alt, sem mann
langar til, en þegar hagur landsins er í veði, þá verður sumt að
bíða betri tíma, ekki hægt að fá alt strax.
Fyrir fimmtíu árum var mataræði, klæðnaður og húsbúnað-
ur landsmanna fábrotið, en reyndist traust. — Nýtni og spar-
semi, sem þá ríkti alment, væri æskilegt að nútímamenn vildu
temja sjer. — Nágrannaþjóðir okkar leggja þessi árin hart að
sjer um margt — vegna fósturjarðarinnar.
Jeg hef trú á konunum okkar, að þær vilji hjálpa til að bæta
hag ríkisins. Þær hafa aldrei lagt kapp á hæstu kröfur. Þær hafa
lagt meiri stund á fórnir en kröfur.
Guð gefi íslensku konunum skilning á sínu erfiða hlutverki,
bæði inná við á heimilunum og út á við fyrir almenningsheill.
Halldóra Bjarnadóttir.
Skýrsla.
Stjómar Sambands norðlenskra kvenna starfsárið 1950— 1951.
Jeg vil byrja þessar hugleiðingar með því að bera fram kær-
ar þakkir stjórnarinnar til vina okkar og gestgjafa frá í fyrra í
Höfðakaupstað á Skagaströnd .Þar var indælt að vera.
Við höfum á þessu liðna ári staðið í sambandi við fjelögin ó
sambandssvæðinu að svo miklu leyti sem mögulegt var. Við
símum oft á milli og skrifum. — Fundi hefur ekki verið hægt