Tímarit Máls og menningar - 01.11.1977, Síða 102
Tímarit Máls og menningar
því vonast eptir góðri samvinnu við báða flokka. í neðri deild reis Skúli
Thoroddsen upp og kvaðst mótmæla þingrœðisbroti því, sem bæði kon-
ungur og Kristján Jónsson hefðu framið. Ut af þessum ummælum Skúla
sló í harða stælu milli Hannesar Hafsteins og Skúla. Hannes gat þess,
er forseti tók að hringja bjöllunni, að það væri hart að meina öðrum að
tala, þegar einum væri leyft það, og það þeim manninum sem hefði
tranað sjer fram allra manna mest og alveg óhæfilega. Því næst mót-
mælti hann því, að hjer væri um nokkurt brot á þingræði að ræða, enda
kenndi allt of mikið eiginhagsmunafylgis í ræðu þingmannsins og fram-
komu og í undirbúningi undanfarandi daga, til þess að nokkuð mark væri
takandi á þessari ræðu hans.
Skúli bjóst að svara, en forseti hringdi hann niður. Eptir fundinn rjeðist
Skúli með miklum þjósti og óheyrilegum blæstri að H. Hafstein og
kvaðst hafa verið að tala fyrir flokksins hönd. Hannes Hafstein kvaðst
vilja segja honum í bróðerni, að það væri einsdæmi, að nokkur hefði
verið jafn yxna í embætti og hann. En Skúli kvað það mundu vera lyga-
skeymm hans og annarra þokkapilta að kenna, að svo væri komið, sem
komið væri. H. Hafstein kvað Klepp ekki vera enn fullásettan.
I efri deild svaraði L. H. Bjarnason ræðu ráðherra með svohljóðandi
skriflegri yfirlýsingu sem hann las upp, meðan forseti hringdi klukkunni
í sífellu:
Fyrverandi stjórnarandstæðingum er ánægja að sjá mannaskiptin, sem orðin
eru í ráðherrasætinu, jafnvel þó að þar muni því miður ekki vera orðin
skoðunarskipti um það málið, sem skilið hefir flokkana hingað til, enda er
afstaða vor gagnvart hæstvirmm ráðherra frjáls og óbundin að öðru leyti en
því, að vjer munum ekki bregða fæti fyrir hann að ástæðulausu á þessu
þingi.
Fá orð í fullri meining. Verax sendi B skýrslu um það sem gerðist frá
13.—16. þ. m.
Vantraustsyfirlýsingu á ráðhena vísað frá
Föstudaginn þann 17. skýrði L. H. Bjarnason mjer frá, að vantrausts-
yfirlýsingin mundi trauðla ganga fram. Mun hann hafa talað við Olaf
Briem og fengið hann til þess ásamt síra Birni Þorlákssyni að taka sam-
324