Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Síða 147

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Síða 147
SAFnFRÆÐSLA: STAÐA OG (Ó)MÖGULEiKAR 147 að afþreyingu eða ferðaþjónustu annars vegar og menningarverðmætum hins vegar og hvernig miðla beri einlæglega sögu, samhengi og menningu safngripa. Gagnrýnisraddir óma gjarnan þegar rætt er um túlkun menn- ingararfs.56 Gagnrýnin er að einhverju leyti réttmæt þegar um minjar og trúverðugleika er að ræða og gerður er greinarmunur á því sem annars vegar telst til túlkunar eða alþýðlegrar sögusýnar sem þykir tilviljanakennd og hins vegar þekkingaruppbyggingar fræðanna. Mismunurinn felst í því að: „Menningararfur byggist á fyrirframgefinni, einstaklingsbundinni nið- urstöðu og á upphaf í óhagganlegri niðurstöðu eða svari. Þess vegna er alþýðleg sögusýn í andstöðu við iðkun fræða sem alltaf ganga út frá spurn- ingu og efasemd og kerfisbundinni leit að nýju svari“.57 Frá sjónarhóli menntunarfræða minnir aðgreining fræða og túlkunar á ólíkar námskenn- ingar og hugmyndir um það hvernig þekking verður til. námskenning atferlisstefnunnar var lengi talin „námskenningin“ í kennslufræðum og byggist á því að þekking er talin algild, hlutlæg og óháð nemendum.58 námskenningar er tengjast hugsmíðahyggju (e. constructivism) fela í sér virkni nemenda og taka mið af þroska hvers einstaklings. Fólk lærir í sam- hengi við umhverfi sitt samkvæmt kenningum rússneska sálfræðingsins Vygotsky (1896–1934) um félagslega hugsmíðahyggju. Öll þekking byggir á fyrri þekkingu, ekki einungis einstaklingsins sjálfs heldur þekkingu alls samfélagsins sem hann lifir í því að sífellt bætist við þekkinguna. nýjar upplýsingar eru settar í samhengi við það sem vitað er fyrir. Þekkingin er ekki yfirfærð né útkoman þekkt fyrir fram heldur byggð upp á forsendum hvers og eins og í félagslegu samhengi.59 nálgun á borð við alþýðlega sögusýn eða túlkun er í andstöðu við hugsmíðahyggju sem byggir á því að unnið sé út frá forsendum nemenda eða safngesta – ekki kennara, skóla eða safna. Í stuttu máli eru forsendur safns, eða túlkun þess á sýningu, ekki talin mikilvægari en túlkun nemanda eða safngesta: „Það sem haldið er að nemandanum er því ekki endanlegur sannleikur og sú merking sem safn- gestur með þekkingu sína og lífsreynslu leggur í safngrip eða skýringar- texta er ekki síður rétt en framlag sýningarstjórans“.60 Túlkun er miðlun 56 Sjá t.d. grein Önnu Þorbjargar Þorgrímsdóttur, „Menningararfur með strípur: Varðveisla eða miðlun?“, Ritið, 1/2008, bls. 7–32. 57 Sama rit, bls. 9 58 Allyson Macdonald, „námskenningar“, 2003, bls. 2. Vefslóð: http://starfsfolk.khi. is/allyson/kennsluefni.htm. Sótt 3. október 2009. 59 Sama rit, bls. 5–6. 60 Magnús Gestsson, „Söfn og safnkennsla. Börn og nýjar raddir“, Lesbók Morgun­ blaðsins, 8. mars 2003, bls. 8–9, hér bls. 9.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.