Úrval - 01.02.1943, Qupperneq 99
Fossi n n
Úr bókinni „Wind, Sand and Stars“,
eftir Antoiiie de Saint-Exupéry.
CEM FLUGMAÐUR frönsku
Sahara fluglínunnar dvaldi
ég um tíma í Port Etienne, á
mörkum óhertekins svæðis eyði-
merkurinnar. Port Etienne er
ekki borg. Þar er stauravirki,
flugskýli og timburskálar ætl-
aðir áhöfnum frönsku flugvél-
anna. Endrum og eins voguðu
Márarnir sér að virkinu, í von
um að geta keypt sykur, baðm-
ullardúk eða te. í hvert sinn,
sem mikils megandi höfðingja
bar að garði, komum við hon-
um með fagurgala upp í fiug-
vél og sýndum honum heiminn.
Tilgangurinn var að mýkja hið
óstjórnlega stolt þessara viltu
ættbálka. Sem verjendur Ailah,
hins eina guðs, var það meira
af fyrirlitningu en hatri, sem
þeir skutu á flugvélar okkar eða
myrtu hina vantrúuðu, er þeir
neyddust til þess að lenda á
landi því, sem Allah hafði gefið
þeim.
Þrír þessara Mára fóru til
Frakkiands í flugvélum okkar.
Ég átti tal við þá, þegar þeir
komu aftur. Þeir reyndu ekki að
leyna hinni ísköldu fyrirlitningu
sinni áEiffelturninum,gufuskip-
unum og eimlestunum. Frakk-
land var á vissan hátt aðdáun-
arvert, viðurkenndu þeir, en það
var ekki vegna þessa heimsku-
legu járnbygginga. Skemmti-
legri hlutir voru til, til dæmis
hringleikahúsið. „Franskar kon-.
ur,“ sögðu þeir, „geta hlaupið
af einum hesti á annan, þótt
þeir séu á harða spretti."
Síðan þögnuðu þeir og íhug-
uðu málið. „Takið einn Mára úr
hverjum ættflokki,“ héldu þeir
áfram. „Farið með þá í hring-
leikahúsið. Og aldrei framar
munu ættflokkarnir fara með
stríð á hendur Frökkum."
Þeir höfðu séð beitilönd í
Frakklandi, þar sem hagar
hefðu verið nógir kameldýrum
allra ættflokka þeirra. Það voru
skógar í Frakklandi. Frakkar
áttu kýr, sem fullar voru af
m jólk!