Úrval - 01.02.1943, Síða 103
LÓBÓ, KONUNGUR ÚLFANNA
101
upp í nefið á mér fyrir gremju.
Og hann hefði getað haldið
áfram að herja til dauðadags,
ef hann hefði ekki gert axar-
skaft. Hann valdi sér að maka
unga og óvarkára úlfynju.
Nokkrir Mexicóbúar, sem
höfðu séð úlfunum bregða fyrir,
sögðu mér að maki hans væri
mjallhvítur að lit. Þeir kölluðu
hana Blanca (Hvít). Að lokum
þóttist ég hafa fundið veilu hjá
hinum gamla kappa og undirbjó
loka-viðureignina. •— Ég drap
kvígu, og setti tvær gildrur ná-
lægt hræinu, svo að þær voru
sýnilegar. Síðan hjó ég hausinn
af kvígunni og lagði hann niður
spottakorn frá, eins og honum
hefði verið fleygt burt.
Við hausinn festi ég tvær
lyktarlausar gildrur og gróf þær
niður. Síðan jafnaði ég jarðveg-
inn með húð af sléttu-úlfi og
bjó til spor yfir gildrurnar með
löppum hans.
Morguninn eftir var hausinn
horfinn og var mér nú heldur
en ekki skemmt. Sporin sýndu,
að Lóbó hafði runnið á lyktina.
Hann hafði gengið allt í kring-
um hræið, og allur hópurinn
hafði skilið aðvörun hans nema
einn. Þessi eini — lítill úlfur —
hafði í gáleysi rölt að hausn-
um, fest eina löppina í gildru og
hlaupið burt með hausinn og
gildruna í eftirdragi.
Mílu vegar burtu náðum við
veslings úlfinum. Það var
Blanca. Hún var fallegasti úlf-
ur, sem ég hefi augum litið,
mjallhvít á feldinn. Lóbó var
með henni og yfirgaf hana ekki,
fyrr en hann sá vopnaða menn
nálgast.
Hún rak upp iangt ýlfur um
leið og hún snérist til varnar.
Langt að barst dimmt ýlfur
Lóbós, sem svar við kalli henn-
ar. En hún svaraði honum aldrei
aftur. Við réðum fljótt niður-
lögum hennar.
Allan þann dag heyrðum við
í Lóbó. Væl hans var átakan-
legt, ólíkt hinu gamla, ögrandi
ýlfri. Um nóttina fylgdi hann
eftir slóð hestanna hér um bil
heim að búinu, og næsta morg-
un fundum við varðhundinn
okkar sundurtættan.
Ég brá skjótt víð til þess að
ná Lóbó, áður en hann hætti
leit sinni að Blöncu. Við grófum
niður fjölda gildra og settum
spor yfir þær með löpp Blöncu.
Á öðrum degi gekk hann í
gildruna. Hann hafði gleymt
varkárni sinni, þegar hann sá
spor úlfynjunnar. Þrátt fyrir