Fróðskaparrit - 01.01.1981, Blaðsíða 18
26
Papeyjardýrið
ingaaldardýra, sem til var vitnað. 1 fræðiritum eru £>essi verk sum
kennd við Jalangursstíl og sum við Mammen-stíl. Parna er mjótt á
milli, eins og kunnugt er, og sumir telja jafnvel varla rettlætanlegt
að greina petta sundur í tvo stílafbrigði. Pað er eins og á |)að er
litið. Vel má vera, að Papeyjardýrið yrði fremur kallað Mammen-
dýr en Jalangursdýr, en eg leiði minn hest hjá að fara út í slíka
sálma. £g læt nægja að kalla fjað dýr af ætt Jalangurs/Mammen-
listarinnar. Eg tel einnig óvarlegt að ætla ser að fullyrða mjog ná-
kvæmlega um tímasetningu. Skaill-silfrið var lagt í jorð um 950,
og eg se ekkert pví til fyrirstoðu, að Papeyjardýrið só frá svipuðum
tíma, miðri 10. old, en gæti vel verið frá seinni hluta aldarinnar.
Yngra held eg alls ekki að f>að se.
Papeyjardýrið er ekki annað en einfalt riss með hnífsoddi, eins
konar graffiti. Sennilega hefur |>að ekki pegar í stað verið rist á
pennan hlut, og vel er hugsanlegt að annar maður en sá, sem tálgaði
hann, hafi gert rissið. En hvort heldur sem er, hefur listamaðurinn
seð pennan sletta flot milli gatanna, gripið hníf sinn og skellt
skyndimynd haganlega niður á flotinn. Sambærilegt riss er dýrið á
oskjuloki úr Oseberg-skipinu (Viking Art Pl. XIX), víkingaflotinn
á spýtu frá Bjorgvinjarbryggju (sjá t. d. Viking 1974, bls. 11 og 12)
og Jalangursdýrið aftan á silfurnælunni frá Sandmúla (Árbók hins
íslenska fornleifafelags 1937—39, IV. myndbl. andspænis bls. 17).
Petta eru allt augnabliksins born. Slíku má líkja við stoku sem hag-
mæltur maður varpar fram. Ekki hvarflar að honum að hann se
að skapa listaverk. En stokuna getur hann |>ó ekki ort nema hann
kunni rímreglurnar, og helst að hann hafi pær í blóðinu. Hið sama
hafa pessir rissarar einnig kunnað á sínu sviði, myndlistinni. Sá
sem getur ort rett kveðna stoku, getur líka ort langt kvæði formrett.
Sá sem gat rissað Papeyjardýrið hefði einnig getað gert stórt verk
í Jalangurs/Mammen stíl. Par með er ekki sagt, að hann hefði getað
gert mikið listaverk. Pað veit enginn. En hann hefur verið heima
í stílnum, hann hefur haft hann í blóðinu. Pess vegna ber litla dýrið
úr Papey okkur milliliðalaus boð úr hugarheimi 10. aldar.
Að lokum: Hvers konar hlutur er petta annars, sem dýrið er
rissað á? í fljótu bragði virðist svarið vera einfalt, að petta muni
vera sakka. En her er á hængur. Margar sokkur eru til frá víkinga-