Skírnir - 01.01.1886, Blaðsíða 18
20
ENGLAND.
Austurálfulöndum, einkum frá Japan. Nisti, hnappar og syigjur
og fleira með fornaldarbrag frá Noregi, og var það allt sjer-
lega til lofs fram tekið í blöðum og lýsingum.
England.
Efniságrip: Inngangsorð. — Atgerðir og úrræði Englendinga í
egipzka málinu. — Misklíðir við Rússa og málalok í Miðasiu. — Sam-
komulag við fjóðverja. — Birmakonungur færður frá ríki sínu, og það
álimað landeignum Englendinga. — Uppreisn í Kanada. — Ráðherra-
skiptin í júní. — Eptirmæli þeirra Giadstones. — Erammistaða þeirra
Salisburys innanríkis, og um þá Randolph Churchill. — Frá Chamberlain;
nýjar kosningar og ný ráðherraskipti; ráð og fyrirhugan Gladstones;
Parnell. — Frá írlandi og Parnell. — Tundursprengingar. — Mislit saga.
— Af hýbýlum verknaðarfólks; nýmæli til umbóta. — Landher. — Kon-
ungsefnið yngra kemst til lögaldurs; dóttir drottningar hin yngsta gipt. -
Manntjón í námum. — Afmæli ■ The Times ■. — Minnisblöð Gordons. —
Mannalát.
þegar menn tala um utanrikismál annara eins ríkja og
England er, þá er auðvitað, að menn eiga við viðskipti stjórn-
arinnar við önnur riki um hagsmuni Englands og rjettindi í
öllum heimsálfum, þar sem Englendingar hafa helgað sjer ráða-
stöðvar eða markað sjer verkasvið. Alit Vigga og Tórýmanna
kunna stundum að verða nokkuð ólík um þau mál, en það er
þó sjálf frammistaðan eða forstaðan fyrir þeim, sem menn deilir
mest á um á Englandi eptir flokkastöð, og þó kann svo að
fara, að þeir sem taka við stjórninni af Öðrum haldi fram í þá
stefnu, sem þeir áður mest víttu. Arið sem leið hefir þetta
vottazt einkanlega á tveim stöðum, eða á Egiptalandi og i
Miðasiu, en siðan frjettunum lauk í undanfarandi árgangi þessa
rits, hafa orðið tvenn ráðherraskipti á Englandi. Gladstone
fór frá stjórninni í júní í fyrra, og tók við henni aptur í fe-
brúar þ. á.