Skírnir - 01.01.1886, Blaðsíða 85
SVISSLAND.
87
menn, nihilistar — já og verstu morðvargar hafa haft þar fyrir
stafni. A fundi i Bern gerði einn af fulltrúunum i þjððarráðsdeild-
inni röksamlega grein fyrir, hver illræðisverk þeir menn hefðu
ráðið og undir búið í hælisvist sinni á Svisslandi. Hann
nefndi, auk morðanna i Austurriki (sjá «Skirni» 1885, 120—
123. bls.), sprengingartilræðið í Niederwald (sjá s. árg.) og?morð
lögreglustjórans í Frakkafurðu, (sjá næsta þátt) og fl. Um þann
tíma var mesti úlfaþytur í blöðum sósíalista og byltingamanna
bæði á Svisslandi og annarstaðar, því stjórnin hafði þá fyrir
skömmu rekið 21 af þeim görpum frá öðrum Iöndum úr landi,
og þvi var ræða þingmannsins vörn fyrir einurðarráði stjórn-
arinnar (sambandsráðsins). Sambandsforsetinn Schenck var
nokkru siðar (í lok júlí) viðstaddur á skotmannahátið í Bern
og er hann kotn við i ræðu sinni ástand og hagi Svisslands,
frelsis og friðarhug landsbúa, forboða framfara og farsældar
landsins, minntist hann og á hina illu gesti þess, sem kæmu
þangað mgð rýtinga, eitur og sprengitundur. j>að eina hefðu
þeir fyrir hælið að bjóða, og því væri stjórninni ekki láandi
þó hún færi að verða varkárari og synja þeim landsvistar, sem
vildu stinga eitruðum oddum í það brjóst, er þeir bæðust
næringar af. — I semptember var enn 5 aðkomnum görpum
vísað' á burt. þeir höfðu stráð á stræti (í Glarus) blöðum,
eða fest á húsveggi, þar sem stóðu eggingar á til tundur-
sprenginga og annara stórræða.
Þyzkaland.
Efniságrip. Um landnám pjóðverja. — Afstaða til annara ríkja. —
Af þingmálum, — Sósialistalög; morðsaga. — Hin pólsku lönd Prússa-
— Brúnsvík (hertogalaus). — Af Bæverjalconungi. — Afmæli Bismarcks.
— Fornleifafundur. — Manntjón í námum. — Skiptapi. — Mannalát,
Franskur rithöfundur hefir sagt, að það ríki hlyti að kom-
ast fram fyrir öll önnur lönd i völdum og auðæfum, sem