Skírnir - 01.01.1886, Blaðsíða 32
34
ENGLAND.
áleiðis í fyrstu og hrakti setuliðssveitir Englendinga úr einu
virki þeirra, sem Carlton heitir, og kom þeim í herkvi á sum-
um stöðum, t. d. i bæ sem Battleford heitir, fyrir vestan Winni-
pegvatnið. Sá hershöfðingi hafði forustu fyrir her Eaglendinga,
sem heitir Middleton, og stökkti hann uppreisnarmönnum á
burt frá þeim bæ, og sótti þá siðan i höfuðstöð þeirra við bæ,
er Batoche heitir, 10. maí. f>eir veittu hjer gott viðnám, en
ljetu þó rekast úr vígi sínu og sóttu til skóga. Á þeim flótta
var Riel sjálfur handtekinn, og við það var uppreisninni lokið.
Mál hans var lengi í dómi, og var sökin látin sæta lífláti.
Margir lögðu sig mjög fram að biðja honum enn vægðar, en
það kom fyrir ekki.
Vjer víkjum nú sögunni að ríkismálum innanlands. Vjer
höfum nefnt að framan ráðherraskiptin i júní, en til þeirra bar
þó ekki ráðareik stjórnarinnar í útanrikismálum, þó hjer þætti
opt tæpt standa. Hún stóðst atreiðirnar út aí egipzka málinu
og tiðindunum illu á Súdan (i febrúar), en með mestu naum-
indum, eða við 14 atkvæða mun i neðri málstofunni. I hinni
fylgdu 189 atkvæði yfirlýsingu vantrausts móti 68. Blöðin
höfðu orð á, að Gladstone hefði verið linari venju fremur i
vörninni, og eigi fjarri að honum ætlaði að bregðast málsnildin.
Sumir vina hans og fyrri sessunauta í stjórninni, t. d. Forstér,
Goschen og fl., greiddu nú atkvæðin með mótstöðumönnum
stjórnarinnar. f>eir menn eru lika ihaldsmenn i Viggaliði, og
hafa orðið meir enn hikandi í fylginu, síðan Gladstone lað-
aðist meir og meir að bandalagi við framhaldsmenn og jafn-
vel þeirra djörfustu skörunga (Chamberlain, Charles Dilke,
Morley, Labouchére, og fl.). Svo komu misklíðirnar við Rússa,
og með því að stjórnin þótti nú taka svo mikla rögg á sig,
að menn varla vissu hvaðan á sig stóð veðrið, var hún nú
lengi látin í friði, og menn vildu ekki trufla hana í stórræðun-
um. f>ó kom það ekki flatt uppá neinn, þegar hún fór að
hopa á hæl fyrir Rússtim, engum þótti í rauninni illa farið, er
hjá styrjöldinni var komizt*). f>ess var áður minnzt, að þingið
*) Framhaldsmenn á Englandi kalla því fje á glæ kastað, sem til stríð-
anna gengur, og svo mun að visu um sum þeirra mega segja, sem