Skírnir - 01.01.1886, Blaðsíða 34
36
ENGLAND.
einskonar vopnahlje við Gladstone það eptir var þingtímans,
svo að þau mál — t. d. kjördæmalögin og viðbótagreinir við
kosningalögin —, sem eigi voru búin, skyldu ná fram að
ganga.
Eptirmælin í blöðunum voru að rnestu leyti samhljóða, þar
sem komið var við forstöðu utanrikismálanna, að hjer hefði
frámunalega á orðið fyrir þeim Gladstone og Granville, enda
játaði hinn fyrnefndi — sem fyr er á minnzt — í ávarpi til
kjósenda sinna — að því oss minnir —, að atfarirnar á
Egiptalandi, og þá einkum sóknin suður að Karthum, hefðu
verið ófyrirsynjuráð frá öndverðu. En hitt urðu allir að játa,
að Gladstone hefði enn innanríkis mikil afreksverk unnið, hvað
lagabætur snerti, og þarf hjer ekki meira að nefna enn lands-
leigulögin á írlandi. og kosningalögin nýju, sem juku kjósenda-
töluna með tveimur millíónum*). — Drottningin vildi svo við
Gladstone skiljast, að hún bauð honnm «jafningja» (pair) nafn,
en hann bað sig undan þeginn, og af þvi rjeðu menn, að karl
hefði annað i hyggju enn setjast i helgan stein og visa frá
sjer þeim erfiðismunum, sem fylgja stjórn og völdum. — Af
hinna liði þá Stafford Northcote virðingarnafnið og heitir nú
Iddesleigh lávarður.
Vjer höfum að framan greint nokkuð frá frammistöðu hinna
nýju ráðherra í vandamáíunum utanríkis, og að öllum þótti
hjer við mega hlíta — já, hvað meira er, ráðherra utanrikis-
málanna, sem nú er, Roseberry lávarður, gerði skjótt kunnugt,
að hann mundi halda i sömu stefnu og Salisbury, en þá höfðu
þau vandræði risið í Balkanslöndunum, sem í þeirra þáttum
skal frá sagt. Innanríkis er ekki frá neinu að segja þeim
Salisbury til hróðurs, enda var til lítils fyrir þá að beitast fyrir
*) Eptir þeim lögum hefir hver sá kosningarrjett, sem annaðhvort
borgar í húsaleigu 180 kr. á ári, eða geldur til fátækra, og gengur
þetta jafnt yfir borgir og byggðir. Við lögin komst tala kjósenda
upp í 5 millíónir. Fulltrúatalan er nú 670 (áður 652), af þeim 103
frá írlandi. Í viðbótagreinum stendur, að sá maður skuli ekki missa
atkvæðarjett, sem hefir þegið í veikindum styrk úr sjóði hrepps eða
sveitar, og á hann óborgaðan.