Skírnir - 01.01.1886, Blaðsíða 142
144
AMERÍKA.
kemur helzt af sjer silfurpeningunum, t. d. í öll ríkisgjöld, og
ganga þeir svo aptur til fjárhirzlunnar. I henni liggja peninga-
dyngjurnar og vaxa ríkinu til frekari halla og missu, nema
lögin sje tekin úr gildi, og hætt verði við peninga úr silfri,
eða einhver miðlunarúrræði fundin. Til þessa máls lætur
Cíeveland taka á næsta þingi.
Bandaríkin hafa nú horfið frá þeirri leiðarsundsgerð um
Nikaragua i Miðameriku, sem höfð var í ráði, og um er getið
i fyrra í «Skirni» 162. bls. Cleveland mun hafa ráðið mestu
um þær lyktir málsins, og hefir honum ekki þótt Bandaríkjun-
um sæma að fara svo i bága við hið mikla fyrirtæki Lesseps
á Panamaeiðinu.
Um atvinnubrest og vanhagi, sem af honum leiða hefir
í Bandarikjunum sama eða áþekkt orðið á bugi og í löndum
vorrar álfu. I skýrslum fjármálaráðherrans — Mc. Cullocks, í
ráðaneytinu á undan — var hjer til orsaka fært ásamt öðru,
að í Bandaríkjunum væri við vinnustarfann meira framieitt á
6 mánuðum, enn til nytja og neyzlu gengi á 12. Og svo er
allur aðkomu- eða vistferlastraumurinn, en flestir eða allir koma
til betri atvinnufanga. Meðal þeirra eru og fjöldi manná, sem
ekkert áttu úrkostis heima, en runnu á agn sendimanna frá
Ameríku og gengu að litlu kaupi — og af því skyldi flutnings-
gjaldið greiða — og gerðu svo marga atvinnulausa af þeim
sem fyrir voru. Ný lög lögðu svo hömlur árið sem leið á
þessa mannflutninga, að þeim skyldi varða 1000 dollara sekt,
sem fyrir þeim mannveiðum gengjust í öðrum álfum, en skip-
stjórnarmönnum 500 doll. fyrir hvern farþegja. í febrúar i
fyrra stóðu atvinnulausir 316,000 verkmanna í Bandaríkjunum.
Um verkaföll og verkmannaróstur hefir hjer ekki verið svo titt
sem í Evrópu, eða lítið á þeim borið síðan þær urðu (1877),
sem sagt er frá i «Skírni» 1878. Arið sem leið bryddi þó á
þeim i meira lagi, t. d. Illinois á tveim stöðum meðal námafólks, og
dró á öðrum staðnum til atvíga og drápa, þar sem tveir menn
fengu bana af skotum löggæzluliðsins, en 9 særðust. Af þeim
verkaföllum er siðar gerðust, eða i byrjun maimán. þ. á., og
þeim atvigum og manndrápum sem þeim fylgdu — í Chicago