Skírnir - 01.01.1886, Blaðsíða 65
FKAKKXAND.
67
og Chanzy hefði verið, og bað menn minnast, að hreystin og
hermennskuandinn hafði fyrrum gert Frakkland að gerðardóm-
anda i málum Evrópu. I hátíðargildinu hjelt Allain Targé
höfuðræðuna. Hann sagði, að viðburðirnir, sem minnisvarðinn
minnti menn á, ættu og að minna Frakkland á, að fara betur
að ráði sínu enn gert var 1870, að forðast flas og tvísýnu, að
tryggja varnir sínar sem bezt, en að eins friðinum til eflingar,
að þjóðin mætti halda áfram verki sínu til vaxandi frelsis og
þrifnaðar í öllum greinum. Blöð þjóðverja þóttust ekki þurfa
neitt að hátíðinni að finna, eða því er þar var talað.
Frökkum er farið að ofbjóða, hvernig fjölgun fólksins
lakrar á Frakklandi í samanburði við fólksíjölgunina i öðrum
löndum vorrar álfu. Paul Bert, sem fyr er nefndur, fór því
fram á á þinginu, að lögleiða verðlaun fyrir barneign, eða
þau, að rikið skyldi taka að sjer uppfóstur sjöunda barnsins,
sem foreldrarnir fengju. Uppástungan mæltist þö ekki vel
fyrir, og menn hjeldu, að hún mundi litið stoða. Menn segja að
aðalorsökin sje, að hjónavigslum hafi fækkað til munar á seinni
árum, þvi Frakkar sjeu famir að verða hálfsmeikir við hjúskap
og þá örbyrgð sem honum kann að fylgja, en vilji ekki trúa
svo á sem sumir aðrir, að «blessun fylgi barni hverju». Á
þetta hafi gerzt,-síðan svo margir fóru að komast i álnir og
geta notið lífsins gæða og hagsælda, og á því hafi flestir hug
sinn festan. Svo kann rjett að vera á litið, en þó kann fleira
til að bera. Svo hefir fróður maður ritað, að fólkið á Frakk-
landi hafi á dögum Loðvigs 14da svarað til 38 fyrir hvert
hundrað af íbúatölu vorrar álfu, en nú sje það hlutfall komið
niður í 13.
Pasteur, efna- og líffærafræðingurinn frægi, hefir nú bætt
þeirri uppgötvan, sem ekki þykir minnst i varið, við aðrar á
undan, að hann getur læknað þá menn, sem óðir hundar hafa
bitið. Aðferðin er fólgin í áþekkri temprun þess eiturs eða þeirra
eituragna, sem hann hefir fundið áður, og sjeð að þær voru
kveikjur ymsra meina, og búið svo varnir úr meinunum sjálfum.
Til hans hafa komið sjúkir menn frá ymsum löndum, já, frá
5*