Skírnir - 01.01.1886, Page 16
18
ALMENN TÍÐINDI.
er sá áburðurinn verstur, að hann hafi gerzt njósnarmaður stjórn-
arinnar í Berlín og sagt til þess manns, sem vann á RumpfF,
lögreglustjóranum í Frakkafurðu (sjá þýzkalands þátt).
Alþjóðasýningar.
Að þeirri sýningu kvað mest sem byrjaði í vor i Antwerpen
(í Belgíu) og stóð fram undir veturnætur. Hve stórkostleg hún
hefir verið, má af því einu ráða, að 105 þús. ferhyrnings-
metra voru hjer undir þaki. Stærsta rúm skipuðu Frakkar
með sínum sýnismunum — eða hjerumbil 10 þús. ferh, metra,
en í flestum lýsingum líka játað, að skrúðmunir þeirra, fagur-
smíði og fleira, bæru af flestu frá óðrum löndum. það er ekki
ofsögum sagt um vora öld, að hún hafi framleitt fleiri nýjungar
og nývirki mannlegs hugvits enn nokkur önnur fyrirfarandi, og
um það bera allar sýningar — og þá einkum stórsýningarnar
— ljósastan vottinn. Hjer þóttu og flest undurin að Hta i
verkvjelaskálanum. Hjer voru vjelar með krapti 11,000 hesta,
og þaðan niður til '/ís þess kraptar sem hesti er gefinn. Vjer
nefnum eitt dæmi um verkhraða sumra. þar var pappírs-
gerðar vjel, sem ummyndaði svo á tíu minútum heila feðmings-
búta af trje, að þeir urðu að snoturlegustu brjeförkum og um-
slögum. Nóg af þeim töfrasögum i lýsingum eða brjefum
þeirra manna, sem þangað fóru, og viða þótti þeim sem þeir
hittu á óskastund, er þeir staðnæmdust við einhverja smiðjuna,
og þeir báðu um grip til minja um sýninguna. Hluturinn bú-
inn til i svip fyrir augum þeirra sjálfra. Hjer voru og alls-
konar aflvjelar sýndar til stórvinnu t. d. til fermingar og af-
fermingar skipa, til uppaustra vatns, dælur sem tóku upp eða
jusu 20 tunnum á einni mínútu, vjelar til hafningar kola og
annars úr námum (og námar til þess grafnir), Hjer má enn
nefna eina jötunkindina; það var fallbissa frá vopnasmiðju
Frakka við Paris, sem Cail heitir. Hún er 17 álna á Jengd
og flytur skeyti sitt hálfa þriðju mílu. En sá hólkur i
dýrara lagi; hefir kostað 1,330,000 franka. Meðal ótal hluta
til hæginda og hlynningar lifsins voru og neyzlumunir, t. d.