Skírnir - 01.01.1886, Page 93
ÞÝZKALAND.
95
Ijet þá vita, að þeir skyldu inuan skamras tíma verða smánar-
lega á gálga festir, f>egar honum var ekið á burt, kallaði
hann til fólksins, að það skyldi fá sjer sprengikúlur og leggja
alla borgina í eyði. Enginn efast nú um, að maðurinn var
einn af morðenglum byltingamanna.
þegar austlægu stórveldin höfðu skipað svo fyrir um stöðu
hinna pólsku landa, sem gert var í Vmarborg 1815, var Pól-
lendingum öllu fögru heitið, hvað þjóðernisrjettindi og trú
þeirra snerti, en Nikulás Rússakeisari rauf fyrstur allra sin
heit, og af því leiddi uppreisnina 1830. þau tíðindi sem siðar
urðu í Posen og Krakau 1846 og 1848, og á Póilandi sjálfu
1863 þarf hjer ek'ki að rekja, en á hitt að minnast, að harð-
ræði Rússa hefir vaxið ár af ári, og af þeirra hálfu alls i leit-
að til að uppræta tungu og þjóðerni Póllendinga og láta ekki
linna fyr enn þeir eru alrússneskir orðnir. Svo óþjállega og
miskunarlaust hafa Prússar ekki að farið, en stefnan er þó
orðin nú hin sama, að minnsta kosti hvað tungu og þjóðerni
snertir, og með skyldarnámi þýzkrar tungu og allskonar ivilnan
við þýzka skóla og hina þýzku ibúa í Posen og Austurpreussen
ætla þeir að þoka hvorutveggju á þurrðarveg. Til þessa hefir
ekki viljað áleiðis ganga, en pólskan orðið að eins fastari
fyrir, og pólskum mönnum drjúgum fjölgað í hinum austlægu
löndum Prússaveldis. Til þess hefir og annað borið, eða það,
að fjöldi manna frá Póllandi (Rússa) og Galizíu hefir leitað
þangað til atvinnu og bólfestu. Prússar ætla nú hjer fyrir
ioku að skjóta, og í fyrra tóku þeir til þess harðræðis, að þeir
visuðu úr landi eitthvað um 30,000 manna, sem þeir kölluðu
þar að komna frá Rússlandi eða Austurríki. Með því að þetta
mál hefir orðið að miklu umtalsefni á Berlínarþingunum í
vetur, þá verður næsti «Skírnir» að greina betur frá, hvað
stjórn Prússa vill hjer með höndum hafa. Hvað henni tekst
með timanum er bágt að vita, en erfiðlega mun henni áform
sitt sækjast, engu siður enn Rússum, þvi siðan 1860 er sá
óleikur orðinn hvorumtveggju i tafiinu, að Póllendingar hafa
hlotið gott og skaplegt sjálfsforræði í Galizíu, Krakau og Búkó-
vinu, landahlutskipti Austurríkis við sundurdeiling hins pólverska