Skírnir - 17.06.1911, Blaðsíða 19
Frá uppvexti Jóns Sigurðssonar.
115
síðan álitsskjal um málið til rentukammersins. Það mælti
einnig fast með frumvarpinu og þótti nú fyrirsjá-
anlegt, að málið mundi enn á ný verða lagt fyrir þingið
í Hróarskeldu sumarið 1840. En þar var enn viðbúið, að
andróður einstakra fulltrúa og ókunnugleiki flestra hinna
á málinu kynni að verða frumvarpinu að falli.
Jón Sigurðsson og stöku aðrir Islendingar í Kaup-
mannahöfn munu hafa rent grun í þetta og fyrir því hafa
ráðið með sér að hreyfa máli þessu í hinum frjálslyndu
blöðum Dana í Kaupmannahöfn. Þann 10. maí 1840 birt-
ist síðan grein í »Kjöbenhavnsposten« (nr. 128) um Island
og verzlun þess (»Island og dets Handel«), auðkend p.
Greinin er allsvæsin í garð danskra kaupmanna. Þar er
t. d. sagt, að landið sé leiksoppur ágjarnra kaupmanna,
sem þrælki og kúgi þjóðina eins og harðstjórar. Danir
fari engu betur með landið en það væri nýlenda þeirra,
þó það sé alkunnugt, að það hafl verið frjálst í upphafi
og hafl síðan af frjálsum vilja bundist bandalagi við
Noreg. Þá er og sveigt að P. C. Knudtzon stórkaup-
manni fyrir andróður hans gegn bænarskránum 1838, kvart-
að yflr ágangi kaupmanna og tekið fram, að það sé ekki
ótítt, að mætist rúgtunna og skippund af flski; að Islend-
ingar fái peninga fyrir þriðjung vöru sinnar, nauðsynjavöru
fyrir hinn, en verði svo að kaupa óþarfa vöru fyrir af-
ganginn. Utlendi varningurinn sé alloft skemdur; ýmsar
vörur séu þriðjungi dýrari á vetrum en á sumrum. Vöru-
birgðir séu oft litlar eða engar og bændur fái að kenna
á reiði kaupmanna, ef þeir eigi kaup við aðra. Krieger
stiftamtmaður hafl risið mót ásælni kaupmanna og bakað
sér með því óvild þeirra, en nú sé hann látinn, og Barden-
fleth sé ekki jafnoki hans.
Tveir danskir kaupmenn, P. C. Knudtzon og Wulff,
sem rak þá mikla verzlun fyrir norðan og austan, svör-
uðu grein þessari í »Kjöbenhavnsposten« skömmu síðar.
Einkum lét Knudtzon mikið yfir sér í svari sínu. Meðal
annars gat hann þess, að þorri manna á Islandi sé
sárreiður þessum bænarskrám til fulltrúaþingsins, nöfn
8*