Skírnir - 17.06.1911, Side 163
Jón Sigurðsson og Bókmentafjelagið.
25»
mánuðum, eða rjett að kalla 4 árum, af starfstíma sínum
til Bókmentafjelagsins, meðan hann var forseti. Er hjer
þó ótalið alt, sem hann vann firir fjelagið, áður enn hann
varð forseti, og allur sá timi, sem hann varði til vísinda-
legra ritstarfa firir það. Alt þetta 4 ára starf vann
hann ókeipis. I hinum fögru minningarorðum, sem vara-
forseti Hafnardeildarinnar, Sigurður L. Jónasson, flutti
um Jón Sigurðsson látinn á fundi 14. jan. 1880, rainnist
hann þess, að Jón hafi verið embættismaður deildarinnar
í 40 (rjettara 41) ár, og bætir svo við: »Það er langur
vinnutími, að vinna kauplaust í 40 ár, enn þar sjáið þjer
ósjerplægnina«').
Þegar alt ísland, allir menn af íslensku þjóðerni,
hvar sem þeir eru í heiminum, safnast nú á afmæli Jóns
Sigurðssonar kringum vögguna, sem stóð á Hrafnseiri við
Arnarfjörð firir hundrað árum, þá er Bókmentafjelaginu
fremur öðrum bæði ljúft og skilt að minnast hans og
þakka honum firir alt hans starf í fjelagsins þarfir. Ef
hann mætti rísa upp úr gröf sinni, mundi hann telja það
sín bestu laun, ef vjer vildum nú taka höndum saman
um að efla Bókmentafjelagið og hefja það á hærra stig,
svo að það geti í anda og sannleika náð því marki, sem
því er sett að lögum, að »stiðja og stírkja islenska
tungu og bókvisi og mentun og heiður hinnar
íslensku þjóðar*.
1878) í sinn gamla heiðnrssess, veikan, og óvíst hvort hon-
um nokkurn tíma hatnaði til þessalífs, iður kann jeg
þakkir í nafni hans og fjelagsins firir þá ræktarfullu elsku, sem þjer
sínduð með því heldur ekki að vikja frá honum, fir enn dauðinn sleit
hann frá iður“.
') Skírsl. og reikn. 1878—1879, IY. hls.
17*