Skírnir - 17.06.1911, Page 43
Frá uppvexti Jóns Sigurðssonar.
139
Þar er beðið um hin sömu atriði sem vér tókum fram í
sumar í bréfinu til Christensens, og voru þau ítarlega rök-
studd. Konungur var hinn mildasti, og vér höfum nokkra
von um bænheyrslu, en þó uaumast um að alþingi verði
háð i heyranda hljóði, og er fyrirkomulag dönsku þinganna
þvi til fyrirstöðu. í dag fer nefnd til konungsefnis með
ávarp (það er og á íslenzku með danskri þýðingu)
til þess að fá liðveizlu hans . . . Allur þessi mánuður
hefir fyrir mér farið í stjórnmálabrask, er það ekki fallegt
til frásagna, en það verður svo að vera, þegar það er um-
liðið. Þér ættið bara að sjá hve skolli þinglega málfundi
við höldum. A einum fundi hélt eg í 8/4 stundar ræðu
um að kjörgengi á íslandi ætti að vera frjálst og þótti mér
vænt um, að löndum mínum þótti hún dágóð, og betri en
vænta mátti af mér; menn féllust á skoðun mína nær því
einróma, að undanteknum etazráðunum og nokkrum kaup-
mönnum«.
Undir bréf1) þessi skrifuðu 41 íslenzkir embættismenn,
námsmenn, kaupmenn og iðnmeistarar í Kaupmannahöfn.
Beiddust þeir, að undanteknum einstöku mönnum, sem
gerðu ágreiningsatkvæði við einstök atriði, alls hins sama,
sem tekið er fram í bréfi til Balthazar Christensens (sjá
136. bls. hér að framan), nema að 1. atriðinu, að kosning-
arlögin á Islandi mætti verða svo óbundin, einföld og
óflókin sem kostur er á, var í bænarskránni til konungs
og ávarpinu til konungsefnis vikið við á þá leið, að Hans
Hátign konunginum »mætti þóknast að veita frjálst kjör-
gengi til alþingis« og þá rýmkun á kosningarréttinum,
setn minni hluti nefndarinnar á fulltrúaþinginu í Hróars-
keldu stakk upp á »að jafnt verði heimt af leiguliðum
og eigendum þ. e. 10a) hundruð af hverjum«. Loks er 5.
atriðinu í bréfinu til Christensens um þingstaðinn hér al-
veg slept.
Bænarskrá þessi og bréf höfðu ekki þann árangur, er
’) Þau eru prentuð i Fréttum frá fulltrúaþingi í Hróarskeldu 1842,
22Ö—233. bls.
s) Hinni hluti nefndarinnar hafði breytt lágmarki breytingartillögu
íinnar, þegar hún fékk engan byr í þinginu, í 10 hundruð úr 20.