Skírnir - 17.06.1911, Qupperneq 77
Vísindastörf Jóns Sigurðssonar.
173
leita lengra; en auðvitað má söguna rita lengri. I þess-
ari grein rekur Jón söguna alt niðurJiLsÍnna daga.
í þriðju grein ritgjörðarinnar mrjrir Jóciþvernig til-
gangi skólanna megi framgengt verða á íslantli. Nú er
auðvitað. að margt hefir breyst í tilhögun skóla og kenslu-
greina, einmitt ekki síst »latínuskólanna«, frá því að Jón
ritaði grein sína fyrir 70 árum. Skipast mardf á skemri
tíma. En þess ber þó að gæta, að á IslancJ hafa ekki
miklar breytingar getað gerst, einkum hvað alþýðufræðslu
snertir, vegna staðhátta. Eni um alþýðuskóla er Jón stutt-
orður, talar þó orð, sem eru fullgild enn í dag. »Hvað
almúgaskólum viðvíkur, þá bannar landslag og strjál byggð
einkum að þeim verði komið við alstaðar, og á ann-
an bóginn er kensla í foreldrahúsum, undir góðri umsjón
presta, í mörgu tilliti hin notabesta«. Svo telur hann
upp, hvar setja mætti barnaskóla — annarstaðar en í
Keykjavik. — Hann bendir um leið á stofnun búnaðar-
skóla, alveg eins og nú er tíðkað á Islandi, — »fengi
bændaefnin þar kenslu bæði í visindum, íþróttum og bú-
skaparaðferð (þar á meðal einkum jarðrækt o. s. frv.J um
5—6 ára tíma«. Hér er Jón langt á undan sínum tíma.
Hann brýnir ennfremur fyrir mönnum þörf á skólum
handa »kaupmannaefnum, stýrimannaefnum og handa öll-
um þeim, sem læra ætla handiðnir eða aðra borgara-at-
höfn«. Alítur hann, að sumt af þessu mætti jafnvel kenna
í latínuskólanum. Hann endar með þessum eftirtakanlegu
orðum: »Til æfinga (i íþróttum, siglingum o. s. frv.) er
Reykjavík allhentugur staður«. Það er auðséð á þessu,
að Jón hefði ekki haít mikið á móti þvi, sem nú er »há-
móðins«, »hegurðar«kenslunni í skólum vorum.
Jón Sigurðsson sýnir aftur hér — auk hins mikla vís-
indalega fróðleiks —, hve framsýnn hann var og hve
mikið hann lagði í það sem hann nefnir »borgara-athöfn«,
hve praktískur hann var í einu orði.
I þriðja árgangi ritaði Jón rækilega ritgjörð um versl-
un Islands. Hún er ekki söguleg-vísindaleg eins og hin-
ar ritgjörðirnar, ©g kemur því ekki þessu máli við. En