Norðurfari - 01.01.1849, Page 179
SVAR TU RKYKJAVÍKURPÓSTSINS.
181
seirna meir vilduð snúa ritgjörð þeirri, sem stendur í Tiden,
Nr. 28 og 33 & 34 , og hverrar ytirskrift er: ‘‘Hvad er Yiden-
skab?’’ Jeg hefl heyrt að höfundur hennar væri prófessor hjerna
við háskólann, og |>ó ekki mjög ungur. Mjer þætti vel tilfallið
að landar sæu hvað skynsamir danskir menn dæma um vísinda-
kennsluna hjerna við háskólann, rþví þá yrði því ei borið við að
það kæmi frá okkur Islendingum. I ritgjórð þessari scgir höfundurinn
meðal annars: “Að visindi sjeu mjög skammt komin í Danmörk
og lítils metin, höfum vjer sýnt í fyrri grein vorri með því að
vísa til nokkurra merkilegra atvika, sem engan veginn eru einstök.”
Jeg held það væri vcl tilfallið, að þjer Ijetuð prenta ritgjörð þessa
í Norírurfara eins og hún er á Dönsku — svo því yrði ei borið
við að þjer hefðuð snúið henni rangt — sem svar upp á ruglið
í Reykjavikurpóstinum.
' “Jeg vildi gjarna reyna til að reka álit Reykjavp. um læknaskólann
á Islandi, ef mjer þætti það ómaksins vert; en með því jcg ætla
injer bráðum, þegar mjer þykir tími til kominn, að sýna löndum
minum, hvernig svo mikilvægt málefni er troðið undir fótum, og
það jafn vel hvað mest af þeim, sem sízt skyldu, þá þykir mjer
óþarfi nú sem stendur að fara mörgum orðum um það. Jegætla
einungis að leyfa mjer að gera herra Reykjavp. nokkrar spurningar, og
þær eruþessar: — Hvernig heldur Reykjavp., að menn við Friðriks-
spítala geti sjeð og lært þa sjúkdóma, sem almennastir eru á
Islandi? Að sjúkdómar í öllum löndum í heimi eru eins ymislegir
í hverju einstöku landi fyrir síg eins og loptslag, jarðarfar, hiti
og kuldi, lifnaðarhættir manna og náttúrufar þjóðanna er ýmislegt,
það veit hver læknir, sem hefur almennilegt skynbragð á læknis-
fræðinni. Eðli allra sjúkdóma lagar sig hvervetna eptir náttúru
landanna og lifnaðarháttum þjóðanna, og það cr einmitt eðli sjúk-
dómsins og ekki nafnið tómt, sem læknum ríður mjög á að þekkja
grandgæfilega.
“jyað er ekki mikil virðing, hvorki fyrir Dani sjálfa nje fyrir
islenzku læknana, að hvorugir þeirra vita neitt um Islands sjúk-
dóma tegundir,'* og munu aldrei vita, fyrr enn læknaskóli kemst á á
Islandi, nema Reykjavp. eða þeir, sem eru á hans máli, vilji ta^ast
á hendur að senda nokkur hundruð, eða jafnvel nokkur þúsund
íslenzk lík hingað til háskólans í Kaupmannahöfn, og þar á ofan
flytja Island sjálft með fjöllum og loptslagi suður til Danmerkur.
Hvernig ætli Reykjavp. mundi vilja koma sjer fyrir ef hann ætti að
* Videnskab er hjer haft í hinni ensku og frakknesku inerkingu orðsins
scienees (vfsindi), í mótsetningu við liHerature (fræði). I’essi nákvíiuni
aðskilnaður á visindum og fnrílum er líka án efa hinn rjettasti, því þó hann
sje ei svo ahnennt tiðkaður á fýzkalandi og þeiin skainmt koinnu löudnin,
sein því fylgja, þá er hans því betur gmtt á Frakklandi, Englandi, Italiu,
Spáni, Portugal og t Ameríku.
** Islands Nosograpkie. — Síðan þetta var skrifað er komið út rit eptir
Dr. Schleisner, Island undersögt fra el lirgevidenskabeligl Synspunkl.
Sú bók getur ei annað enn ákaílega stutt þetta álit, og sannað enn freinur
það, sem vjer sögðum í fyrra.