Eimreiðin - 01.01.1900, Blaðsíða 103
103
Ormur Stórólfsson vann á; en þar er enginn þussi tii að reyna
sig við. Par í garðinum er hið forna fimleikahús barnaskólans,
sem þótti bráðnauðsynlegt að hafa handa öllum þeim feiknagrúa
af bögglum, sem áttu að koma úr öllum áttum; menn hafa séð
þar inni nokkur eintök af »Pjóðviljanum unga«. Gamla barna-
skólahúsið er nú ekki lengur til, það var allstórt hús einloftað,
með háu þaki og fornlegt, og átti Bjering kaupmaður það, og
þótti þá eitthvert helzta húsið hér í bæ. Pá koma vöruhús ýms,
og síðan eitt mikið hús tvíloftað, sem áður var verzlun Knudtzons
stórkaupmanns, en heitir nú »Edinborg« og er ensk verzlun; for-
maður hennar er Ásgeir Sigurðsson, bróðursonur Jóns Hjaltalíns
skólastjóra á Möðruvöllum. Par við hliðina er lágt hús með afarmiklu
þaki spónlögðu;
þetta er eitt af
húsum »kóngs-
verzlunarinnar«
gömlu; þar eru
lágar stofur og
mundi nútíðar-
börnum þykja lít-
ið til koma, sem
von er, því að í
þá daga var það
álitið nóg, ef með-
almaður gæti
staðið uppréttur,
en ekkert hugsað
um nægilegt loft eða andrúm. (Þetta hefur og verið lagið með
bæina: bæjardyr og hús voru svo lág, að menn þurftu altaf að
vera kengbognir og álútir, þá er menn gengu inn, og hefur þetta
orðið að vana hjá mörgum, þótt íslenzkir alþýðumenn annars
gangi og beri sig fult eins vel og enda betur en aðrar þjóðir).
I'etta hús var áður bústaður »faktoranna« við Knudtzons verzlun.
Bæði það og næsta húsið er bygt niður í forinni, grundvallarlaust
eins og þá var títt; þetta síðar talda hús var áður kallað »Robbs
hús«, því að þar verzlaði enskur kaupmaður með því nafni (um
1830 og seinna), og átti hann húsið, en síðar tók sonur hans Carl
við, hann var stúdent frá Bessastöðum; þeir voru fjórir bræður,
James, Jón, Carl og Hans, og drukku allir meir en flestir aðrir
Á. Thorst. phot.
PÓSTHÚSIÐ.