Eimreiðin - 01.01.1900, Blaðsíða 75
75
botninum og er þar undirrenna, sem leiðir vatnið ofan í lækinn,
má þá sjá vatnið fossa í leysingum og renna niður í undirdiúpin
með óðfluga straumi, beljandi og fossandi eins og Goðafoss eða
Niagara; þar er vatnsból með dælu eða járnpípu upp úr jörðinni,
sem vatnið er póstað upp með; á vetrum er heill jökull eða klaka-
bunga í kring um pípuna, svo þar er varla stætt, og má þar oft
sjá gæðinga bæjarbúa bíðandi eftir svalandi vatnsdrykk, til að
styrkja sig til erfiðisins: að bera hina gullvægu kroppa yfir fold-
ina. En eftir að Landsbankinn komst inn í þetta hús, þ'á þókn-
aðist bæjarstjórninni að nefna þessa götu »Bankastrœti«, sem
bráðum mun verða úrelt nafn og óskiljanlegt eftirkometidunum,
nema þeir lesi það, sem hér hefur verið ritað.
PlNGHOLTIN. Suður úr Bankastræti liggja þrjár götur, heitir
hin efsta Tngólfssirætb, þá er »Pingholtsstræti« og neðst »Skóla-
stígur«. í Ingólfsstrœti er fyrst að nefna hús Lárusar Lúðvíks-
sonar skósmíðameistara, nýtt steinhús með ágætu fyrirkomulagi;
þá er þar áfast við hús nokkurt nýtt, sem var bygt upp úr bæ,
sem Jón prentari átti; þá er »Ofanleiti«, stórt hús einloftað og
snoturt; þá er stórhýsi, sem sumir hafa kallað »Miklagarð«, en
sumir »Uppsali«, tvíloftuð bygging á háum grundvelli og höfðingja-
setur, einna stærst húsa í bænum og bezt fyrir komið utan sem
innan; þar er víðsýni mikið, því að það gnæfir upp yfir öll önnur
hús, og má þaðan sjá yfir alt Álftanes, Bessastaði og öll suður-
fjöllin og fram um alt Seltjarnarnes og út yfir allan sjó; það hús
létu þeir byggja Magnús Stephensen, sem þá var yfirdómari, og
Theódór Jónassen, sem þá var bæjarfógeti og síðan amtmaður.
Par fyrir framan er fagur blómgarður og grasflöt allmikil. Nú
hafa þeir keypt húsið og búa þar: Júlíus Havsteen amtmaður og
Guðmundur Magnússon læknaskólakennari, því að Magnús flutti
þaðan, er hann varð landshöfðingi, en Theódór andaðist þar. Frá
þessu húsi liggur stígur ofan með húsi Helga Helgasonar kaup-
manns, og alt ofan að læknum. Gagnvart húsi Lárusar Lúðvíks-
sonar eru tvö hús allsnotur, sem eru smíði og eign Gunnars
snikkara.
í finghoUsstrœti er fyrst a horninu hús Jóns Tórðarsonar
kaupmanns, sem fyr var getið; þá er allmikið hús tvíloftað, sem
Gunnlaugur prentari bygði upp úr litlum kofa og fór svo til
Ameríku og hvarf þar; þar bjó Hjálmar. lJá er hús Erlendar